Morgunblaðið og Sjálfstæðisflokkur sem vildu stækka ehf.-gatið vilja nú loka því

Síðustu daga og vikur hefur Morgunblaðið fjallað um ráðgjafagreiðslur til einkahlutafélags á forsíðu blaðsins. Tónninn er að það sé óeðlilegt, ef ekki glæpsamlegt, að ráðuneyti semji við félag í eigu ráðgjafa þegar það kaupir utanaðkomandi ráðgjöf.

Þar var gert að meginefni að eigið fé félags hefði verið neikvætt um 3,1 milljón króna þrátt fyrir hagnað á síðasta ári og slúður um að eigendur þess, hjón sem búa í öðru landi, hefðu einhvern tímann gert greiðslusamning um að gera upp skattaskuld. Þess má geta að lög um opinber innkaup setja ekki skilyrði um jákvætt eigið fé né skorður gagnvart því að fólk með gildan greiðslusamning við Skattinn taki að sér verkefni fyrir ríkið. Miklar áhyggjur virðast síðan vera af því hvernig andlag fréttarinnar reiknaði sér endurgjald fyrir vinnu sína.

Í þessu tilviki var þó um að ræða einstakling sem blaðamaðurinn og fjölmiðillinn líta á sem pólitískan andstæðing og þá skiptir raunveruleikinn sennilega ekki miklu máli. En látum það liggja á milli hluta.

Varaformaður dylgjar um fjarstatt fólk

Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, er sjaldan langt undan þegar flokkseigendafélagið vantar einhvern til að ata æru annarra auri. Á þriðjudag var hann mættur í pontu Alþingis til að dylgja um meinta skattaskuld og jafnvel skattaundanskot ráðgjafans, sem hann nafngreindi og talaði fjálglega um þótt hún hafi sannarlega og eðlilega verið fjárstödd enda ekki kjörinn fulltrúi.

Þegar Jens Garðari var bent á að framganga hans væri ekki þingmanni sæmandi þá nýtti hann ekki tækifærið til að biðjast afsökunar heldur reyndi að bera fyrir sig að hann væri nú bara að vitna í fjölmiðla. Þar með sannaði hann hringrásarkerfistilgátuna um að aur sé iðulega veiddur er upp úr skúffum í Hádegismóum, svo atað á forsíðu Morgunblaðsins, loks endurtekinn af fulltrúum þessa valdakerfis á þingi í þeirri von um að endurtekningin ein geri aurinn að skínandi sannleika. En aur er bara aur.

Það að fara aftur og aftur með lygar og ærumeiðingar í mismunandi herbergjum gerir þær nefnilega ekki sannar.

Vildu stækka gatið fyrir ráðgjafa

Áhugaverðara er að umræddur blaðamaður, Morgunblaðið, Jens Garðar og stjórnmálaflokkurinn þeirra hafa á tyllidögum krýnt sig sem talsmenn, ef ekki varðmenn, einyrkja sem taka að sér verkefni, fleyta tekjum í gegnum einkahlutafélög sín og reikna sér endurgjald annars vegar af launum og hins vegar af arði.

Fyrir síðustu kosningar var mikið rætt um hið svokallaða ehf.-gat, sem sumir stjórnmálaflokkar vildu loka. Rökin fólust í því að eigendur einkahlutafélaga sem tóku tekjur sínar í gegnum þau félög hefðu getað nýtt sér mun á skattlagningu launatekna og arðgreiðslna til að lækka heildarskattbyrði sína. Þeir flokkar sem vildu múra fyrir þetta vildu endurskoða fyrirkomulag reiknaðs endurgjalds og koma þannig í veg fyrir að launatekjur væru taldar fram sem fjármagnstekjur, sem bera lægra skatthlutfall.

Sjálfstæðisflokkurinn og Morgunblaðið lögðust hart gegn þessu. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þá frambjóðandi flokksins og dóttir stjórnarformanns útgáfufélags blaðsins, skrifaði meðal annars grein í téð Morgunblað sem bar fyrirsögnina: „Stækkum „ehf.-gatið“.

Innihaldið var fyrst og síðast að það væri misskilningur að lokun þess væri beitt gegn breiðum bökum heldur væri spjótum öfundarfólks úr félagshyggjuflokkum fyrst og síðast beint gegn venjulegu, vinnandi fólki. Orðrétt sagði: „Ekki verður annað séð af tillögum þeirra en að tilgangurinn sé að slá ódýrar pólitískar keilur. Slíkar æfingar höfum við öll séð áður í kosningabaráttu. Verra er þegar þeir sem standa í sjálfstæðum rekstri – langflestir í litlum fyrirtækjum – fá ekki að njóta sannmælis um framlag sitt til samfélagsins. Það eru gild rök fyrir því að píparar, smiðir, rafvirkjar, hárgreiðslumeistarar, bakarar og aðrir iðnaðarmenn stofni einkahlutafélag utan um þjónustu sína eða rekstur. Það sama má segja um forritara, ráðgjafa, hönnuði, bókara og fleiri.“

Vilja nú loka gatinu fyrir ákveðna ráðgjafa

Fleiri úr frelsisins hægri stilltu upp í varðstöðu fyrir einyrkjana með einkahlutafélögin. Í leiðara Viðskiptablaðsins sagði að lokun ehf.-gatsins myndi helst bitna á „einyrkjum sem hafa stofnað rekstur utan um sérfræðiþekkingu sína“. Þar væri um að ræða „fyrst og fremst fólk með iðnmenntun og aðra með sérfræðikunnáttu sem stofnað hafa lítinn rekstur í kringum hana“.

Stefán Einar Stefánsson, sem skrifaði forsíðugreinar Morgunblaðsins um ráðgjafann á síðustu dögum, varði rétt einyrkja til að ákveða sér reiknað endurgjald af mikilli hörku í sjónrænum hlaðvarpsþætti sínum sem fór í loftið fyrir um tveimur árum, skömmu fyrir síðustu kosningar. Þar sagði hann það einfaldlega vera skatt á einstaklinga, hvort sem um væri að ræða launa- eða fjármagnstekjuskatt. Allir einyrkjar í rekstri myndu þurfa að borga skatta ef ehf.-gatinu yrði lokað enda kæmu greiðslurnar til þeirra „úr hlutafélögum og einkahlutafélögum hjá pípurunum, smiðunum og slíku fólki, og verktökum.“

Nú tveimur árum síðar hefur öllum í hægrinu snúist hugur. Nú snúa áhyggjur þess ekki að meintum skattahækkunum á einyrkja heldur virðist það krefjast þess að reiknað endurgjald einstaklinga sem vinna fyrir pólitíska andstæðinga sé í formi launa frekar en arðs. Eða nákvæmlega það sem hægrið, Morgunblaðið og Sjálfstæðisflokkurinn gagnrýndu harðlega í aðdraganda síðustu kosninga. Kúvendingin er algjör.

Þá vitum við það.