Alþingi samþykkti í desember 2025 að veita Skattinum 250 milljónir króna í viðbótarfjármagn til að efla skattaeftirlit í samræmi við stjórnarsáttmála sitjandi ríkisstjórnar. Fjórtán stöðugildi sinna nú nýjum verkefnum, einkum eftirliti á sviði virðisaukaskatts og tekjuskatts fyrirtækja. Í nýlegu minnisblaði sem skilað var inn til fjárlaganefndar er farið yfir árangurinn.
Þann 3. nóvember höfðu verkefnin leitt til endurákvarðana skatta upp á tæpar 792 milljónir króna. Það þýðir að viðbótarfjárveitingin hefur skilað sér rúmlega þrisvar sinnum til baka.
Samkvæmt minnisblaðinu, sem gert var í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, er áætlað að endurákvarðanirnar nemi að minnsta kosti 1,2 milljörðum króna í árslok 2026. Fyrir árið 2027 er áætlaður beinn tekjuauki að minnsta kosti 1,6 milljarðar króna og, með óbeinum áhrifum, ekki undir tveimur milljörðum króna. Þá á eftir að meta árangurinn af forvarnargildi til lengri tíma og telja ávinninginn af því með.
Það eiga allir að borga sitt
Minnisblaðið birtir ekki samantekt um hversu mikið hefur þegar verið greitt af því sem hefur verið endurákvarðað á fólk og fyrirtæki en tölurnar sýna engu að síður umfang þeirra skattkrafna sem aukið eftirlit hefur leitt af sér.
Ávinningurinn snýst ekki síður um réttlæti. Sameiginlegur rekstur samfélagsins byggist á því að fólk og fyrirtæki standi skil á því sem þeim ber. Heilbrigðisþjónusta, skólar og aðrir innviðir þurfa á fjármögnun að halda og eðlilegt er að stjórnvöld leggi metnað í að innheimta þær tekjur sem lögin gera ráð fyrir.
Öflugt eftirlit á líka að verja heiðarleg fyrirtæki. Ógreiddir skattar geta skapað óeðlilegt forskot aðila gagnvart keppinautum sem standa við sínar skyldur. Fyrirtæki sem greiðir laun, gjöld og skatta samkvæmt reglum á að geta treyst því að aðrir sitji við sama borð.
Skattalögin eiga einfaldlega að gilda jafnt fyrir alla.
