Samkeppniseftirlitið greindi frá því í vikunni að það hefði óskað eftir að olíufyrirtæki landsins myndu afhenda sér gögn um þróun eldsneytisverðs undanfarna mánuði. Það gerðist í kjölfar þess að heimsmarkaðsverð á bensíni hefur verið að lækka skarpt án þess að sú lækkun sé að skila sér í neinu samræmi á dælu landsmanna.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur ákvað í vor að lækka tímabundið virðisaukaskatt á eldsneyti út síðasta sumar. Til að tryggja að eldsneytissalarnir myndu ekki stinga ávinningnum í vasann var Samkeppniseftirlitinu falið að vakta álagninguna.
Stjórnarandstaðan bölsóttaðist út í þessar aðgerðir og kallaði þær sovéskar. Í minnihlutaáliti fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Miðflokks sagði að reynslan sýndi að verðlagseftirlit væri óskilvirkt inngrip sem dragi úr samkeppni og geti jafnvel hækkað verð. Um stórkostlegt afturhvarf til fortíðar væri að ræða.
Í byrjun viku greindi Samkeppniseftirlitið svo frá því að það hefði lokið verðlagseftirliti sínu vegna tímabundinnar lækkunar á virðisaukaskatti á eldsneyti frá 1. maí til 31. ágúst. Niðurstaðan var sú að lækkunin skilaði sér að fullu til neytenda. Verðlagseftirlitið virkaði, með öðrum orðum, fullkomlega.
Hæsta álagning sem sést hefur á liðnum árum
Frá því að verðlagseftirlitinu lauk 1. september er annað uppi á teningnum. Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) birti grein í síðustu viku þar sem því er haldið fram að smásöluverð eldsneytis hér á landi hafi hækkað umfram það sem breytingar á heimsmarkaðsverði eldsneytis gefa tilefni til. „Íslensku olíufélögin eru nú í nóvember með hæstu álagningu á bensín og dísilolíu sem sést hefur á liðnum árum. Þetta gerist á sama tíma og forsvarsmenn olíufyrirtækjanna segjast vera í liði með þjóðinni í baráttunni gegn verðbólgu.“

Kratinn ákvað að kanna þessa fullyrðingu og notaði til hliðsjónar bensínvakt sem Hjálmar Gíslason hefur haldið úti árum saman. Í henni er samsetning eldsneytisverðs brotin niður í hluta líkt og áætlað innkaupaverð og áætlaður hlutur olíufélags í hverjum seldum lítra.
Þegar teknir eru saman þeir tíu mánuðir frá sumarlokum 2007 sem olíufélög hafa tekið til sín hæstu krónutöluna af hverjum seldum bensínlítra og leiðrétt fyrir verðlagsbreytingum kemur í ljós að fjórir þeirra mánaða voru á árinu 2026. Þegar sú staða er mátuð við þá staðreynd að í aðra fjóra mánuði var virkt verðlagseftirlit með olíufélögunum og þeim því gert nánast ókleift að stinga ávinningi af virðisaukaskattslækkun í vasann er erfitt annað en að taka undir með FÍB. Verðið á dælunni virðist mun hærra en það ætti að vera þegar það er mátað við sveiflur á heimsmarkaðsverði.
Enginn getur verið stikkfrí í baráttu við verðbólgu
Það er því ljóst að verðlagseftirlit með fákeppnisfyrirtækjum á Íslandi er ekki einungis æskilegt heldur nauðsynlegt og það skilar neytendum gríðarlegum ávinningi. Sá ávinningur mun birtast bæði við dæluna og líka í minni verðbólgu enda er innflutta olíuverðið stór breyta í henni.
Í síðasta mánuði náðist samkomulag um að kjarasamningar myndu halda. Ríkisstjórnin lagði mikið til í þeim pakka til að styðja við heimilin í landinu, hækka gjöld ekki yfir verðbólgumarkmið og auka uppbyggingu í almenna íbúðakerfinu. Samtök atvinnulífsins hvöttu samhliða aðildarfyrirtæki sín til að halda aftur af verðhækkunum.
Ný spá Seðlabanka Íslands bendir til þess að það takist að halda aftur af verðbólgu á næsta ári og að hún verði um þrjú prósent í lok næsta árs. Sú spá gefur fyrirheit um að vaxtalækkun geti hafist strax í febrúar 2027 öllum sem búa og starfa á Íslandi til heilla.
Til þess að sá árangur náist, og verði jafnvel enn betri en spáð hefur verið, þurfa allir að leggjast á árarnar og halda aftur af verðhækkunum. Olíufélög landsins eru þar sannarlega ekki undanskilin.
