Kofra þökkuð björgunin

Í kjördæmavikunni í lok febrúar kom Björgunarsveitin Kofri í Súðavík hluta þingflokks og starfsliðs Samfylkingar til aðstoðar, eftir að ferðalag hópsins vestur á Ísafjörð endaði í djúpum snjóskafli í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi, í afleitu veðri, seint á fimmtudagskvöldi.

Björgunarsveitir landsins hafa að undanförnu verið að selja Neyðarkallinn, en árlegt fjáröflunarátak Neyðarkallsins er ein af mikilvægum stoðum í starfi björgunarsveita og slysavarnadeilda hringinn í kringum landið. Allur ágóði af sölunni rennur til starfsins og nýtist meðal annars til kaupa á búnaði, þjálfunar sjálfboðaliða og eflingar viðbragðsgetu.

Þingflokkur Samfylkingar ákvað að þakka fyrir aðstoð björgunarsveitarinnar í Súðavík með fjárstyrk og kaupum á stærri gerð Neyðarkallsins, sem mun prýða þingflokksherbergið.

Þau Guðmundur Ari Sigurjónsson og Arna Lára Jónsdóttir, formaður og varaformaður þingflokksins, voru stödd fyrir vestan í síðustu viku og fóru og sóttu sjálfan Neyðarkallinn til Tinnu Rúnar Snorradóttur, sem situr í stjórn Kofra. Með þeim á myndinni hér að ofan er einnig Arnar Þór Ingólfsson starfsmaður þingflokks, fyrir hönd þeirra sem þurfti að bjarga úr skaflinum í Skötufirði.

Þingflokkur Samfylkingar þakkar björgunarsveitinni Kofra á Súðavík á ný fyrir aðstoðina fyrr á árinu og björgunarsveitum um allt land fyrir sín störf og framlag til samfélagsins.