Það er mikið látið með það á fimmtu hæðinni í Sjóvá-húsinu, hvar Sjálfstæðisflokkur nútímans heldur höfuðstöðvar sínar, að þeim hafi tekist að fá liðhlaupa úr Viðreisn til að næla í sig fálkann. Borubrattir þingmenn flokksins virtust telja það styrkleikamerki að ungur maður sem fór í framboð fyrir annan flokk fyrir tveimur árum, samþykkti stjórnarsáttmála, studdi álagningu kílómetragjalda og hækkun veiðigjalda, sagði já við samgönguáætlun, var einarður stuðningsmaður inngöngu Íslands í Evrópusambandið og tók þátt í að afgreiða fjárlagafrumvörp út úr þingflokki varð allt í einu illt í hægrinu sínu og skipti um skoðun á öllu saman.
Fyrir aðra er þetta þó lítið annað en enn eitt atriðið í leikritinu um flokkinn sem einu sinni var. Það liggur nefnilega fyrir, staðfest með raunverulegum tölum, að sá flokkur sem hefur misst flesta þingmenn það sem af er kjörtímabili er Sjálfstæðisflokkurinn. Frá því að kosið var síðast hefur öll þáverandi forysta flokksins ákveðið að snúa sér að öðrum verkefnum en þingstörfum og helsta vonarstjarna hans fylgdi eftir í humátt.
Fyrst fór Bjarni Benediktsson formaður. Svo fór Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður og Vilhjálmur Árnason ritari fylgdi í kjölfarið. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrverandi ritari Sjálfstæðisflokks, næstyngsti ráðherra Íslandssögunnar og sú sem tapaði formannskosningu í flokknum með nokkrum atkvæðum þeirra sem sváfu yfir sig á kjördag í fyrra, rak svo lestina í sumar.
Fyrst allt þetta fólk myndaði forystusveit flokksins árum saman og var framan á plötuumslaginu fyrir síðustu kosningar þá mætti ætla að það hafi myndast gat í getu. Gat sem hann reynir nú að fylla upp í með þingmanni sem hefur verið á öndverðum meiði í öllum helstu átakamálum kjörtímabilsins til þessa.
