Kröfðust þess að Alþingi legði niður störf fyrir fund hagsmunasamtaka

Áhugaverður leikþáttur var settur á svið er þingfundur hófst í dag, miðvikudag. Stjórnarandstöðuþingmenn fóru þá fram á það, einn á eftir öðrum, undir liðnum fundarstjórn forseta, að þingfundi yrði frestað til að þingmenn gætu sótt opinn fund Samtaka ferðaþjónustunnar, sem skipulagður var kl. 14, eða á sama tíma og þingfundur stóð yfir. Þingfundur hófst kl. 13:30 í dag, með óundirbúnum fyrirspurnum.

Á dagskrá þingfundar í dag eru atkvæðagreiðslur um allnokkur mál og svo fer fram fyrsta umræða um nýtt náttúru- og innviðagjald, sem ferðaþjónustan hefur sett sig upp á móti en þjóðin tekur upp til hópa fagnandi, nánast þvert á stjórnmálaskoðanir og búsetu, eins og niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar sem Gallup framkvæmdi sýna glögglega.

Töfðu þingfund svo enginn kæmist á fundinn

Þingmenn stjórnarandstöðunnar létu að því liggja að liðsmenn ríkisstjórnarflokkanna vildu ekkert við ferðaþjónustuna tala, á sama tíma og hver mínúta sem þeir töluðu um það í fundarstjórn forseta seinkaði því að þingmenn gætu lokið atkvæðagreiðslunni, farið úr húsi og inn á fund Samtaka ferðaþjónustunnar, sem haldinn er í öðru húsnæði við Austurvöll og átti að standa yfir frá 14-17

Guðmundur Ari Sigurjónsson, varaformaður Samfylkingar, tók til máls og sagði að fyrir hefði legið frá því á sunnudag, í samtölum á milli þingflokksformanna, að frumvarpið um nýja innviðagjaldið yrði tekið fyrir á þingfundi í dag.

„Hér hlýðum við á fulltrúa minnihlutans, í raun reyna að hafa dagskrárvaldið af forseta og færa það úti í bæ, út af því að þau vilja komast á fund með hagsmunaaðilum hérna hinum megin við Austurvöll. Á sama tíma eru þau að verða búin að tala í hálftíma í þessum dagskrárlið þannig að þau eru einfaldlega missa af þessum fundi út af sínum eigin töfum hér í þingsal,“ sagði Guðmundur Ari í umræðunni.

Hann bætti því við í seinni ræðu, þegar umræður um fundarstjórn forseta höfðu staðið yfir í rúma klukkustund, að forseti Alþingis hefði verið búin að sýna á þau spil að hugsanlega þyrfti að kalla eftir heimild til að hafa lengri þingfund í dag.

„Það er kallað eftir mikilli umræðu um þetta mál og það er verið að bregðast við því með lengri þingfundi þannig að ég hreinlega skil ekki vandamálið hér. Í rauninni er það eina sem birtist hér í þessari klukkutíma löngu syrpu, að hér er verið að reyna að tefja fund til að komast ekki á fundinn hérna hinumegin við Austurvöll,“ sagði Guðmundur Ari um leikþátt stjórnarandstöðunnar.

Atvinnuvegaráðherra þóttist sjá glitta í veiðigjaldapólitík Sjálfstæðisflokksins

Atvinnuvegaráðherrann Hanna Katrín Friðriksson úr Viðreisn tók til máls í umræðunni og hafnaði því alfarið að hún vildi ekkert við ferðaþjónustuna tala, eftir að það var borið upp á hana af einum þingmanni Sjálfstæðisflokks, Bryndísi Haraldsdóttur.

„Ég geri engar athugasemdir við það að pólitík Sjálfstæðisflokksins sé slík að í þessu máli, líkt og í veiðigjöldunum, ætli hann að berjast með kjafti og klóm gegn því að þjóðin fái í sinn hlut eðlilegt gjald fyrir nýtingu þjóðarauðlinda í eigu þjóðarinnar. En förum þá í málið eins og það liggur fyrir og sleppum slíkum persónulegum skít sem hæstvirtur þingmaður lét hér falla, vegna þess að þetta er rangt,“ sagði Hanna Katrín.

Þess má geta að Samtök ferðaþjónustunnar hafa að undanförnu staðið fyrir opnum fundum víða um land sem þingmenn allra stjórnarflokkanna hafa sótt. Fundurinn í Reykjavík í dag er sá fjórði í röðinni.

,