Seðlabankinn spáir því að verðbólga verði þrjú prósent í lok næsta árs

Seðlabanki Íslands ákvað í vikunni að halda stýrivöxtum óbreyttum. Samhliða birti hann rit sitt Peningamál og í því nýja spá sína um helstu hagstærðir. Þar komu fram þau gleðitíðindi að bankinn telur verðbólgu fara undir fjögur prósent um mitt næsta ár og að hún verði komin niður í þrjú prósent undir lok þess. Það yrði lægsta verðbólga síðan snemma árs 2020, eða um það leyti sem kórónuveirufaraldurinn var að láta á sér kræla á Íslandi.

Flestir greiningaraðilar voru þegar komnir á þá skoðun, áður en Seðlabankinn birti sitt plagg í liðinni viku, að stýrivextir myndu byrja að lækka strax í febrúar næstkomandi. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri gaf þeim væntingum byr undir báða vængi í viðtölum sem hann fór í eftir stýrivaxtaákvörðunina á miðvikudag.

Enn áhugaverðara er að Seðlabankinn spáir því að verðbólga hjaðni mun meira á árinu 2027 en stóru viðskiptabankarnir höfðu gert. Í þeirra spám var samt sem áður gert ráð fyrir að stýrivextir færu niður í um 6,5 prósent í lok næsta árs. Það yrðu þá lægstu vextir sem verið hafa hér á Íslandi síðan á árinu 2023 og í órafjarlægð frá þeim tveggja stafa tölum sem sáust í tíð síðustu ríkisstjórnar, þeirrar sem ber alla ábyrgð á verðbólgu- og vaxtaástandi síðustu ára með efnahagslegri óráðsíu sinni.

Gangi spá Seðlabankans eftir eru réttmætar væntingar til þess að stýrivextir geti lækkað enn hraðar og verðbólgumarkmiði verði náð snemma árs 2028. Það mun skila heimilum og fyrirtækjum landsins gríðarlegum kjarabótum. Fyrir venjulegt vinnandi fólk með hefðbundið húsnæðislán gæti það skilað yfir 600 þúsund krónum á ári í nýjar ráðstöfunartekjur.

Allt er þetta hluti af plani ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Að taka til og ná jafnvægi á ríkisfjármálunum eftir óábyrgt samkvæmi þeirra sem lofuðu að gera allt fyrir alla en höfðu hvorki dug né getu til að fjármagna neitt af því. Öllu var safnað á yfirdrátt sem börnin og barnabörnin gátu borgað seinna.

Næsta skref verður svo að koma hagkerfinu hratt en örugglega af stað með áherslu á aukna framleiðni og sjálfbæran vöxt byggðan á skynsamri atvinnustefnu stjórnvalda til næstu tíu ára.

Eftir krefjandi tíma þar sem þurfti sterk bein til að laga Ísland er bjart framundan.