Í hlaðvarpi vikunnar mætti nýr varaformaður Samfylkingarinnar, Guðmundur Ari Sigurjónsson, í sannkallað drottningarviðtal til Arnars Þórs og Þórhalls Vals. Drengirnir gengu hart að honum og kröfðu hann um að útskýra sína pólitísku sýn, hvað hann langaði að afreka sem varaformaður og hvernig hann fór frá því að vera utangátta unglingur yfir í að öðlast tilgang og finna til ábyrgðar gagnvart samfélaginu.
Það er óhætt að segja að þema þáttarins hafi verið jafnaðarstefnan, hvað í henni felst og hvernig hún spilar þátt í því þeim aðferðum sem Samfylkingarfólk beitir í stjórnmálum. Í fyrri hluta þáttarins ræddu starfsmenn þingflokks Samfylkingarinnar helstu mál vikunnar en þar má nefna hertar reglur um au-pair dvalarleyfi og hvernig hátekjuhópar brugðust við því, líflegar og upplýsandi umræður um erfðafjárskatt í pontu Alþingis, augljóst handbragð jafnaðarmanna á kjarasamningagerð og nýliðinn flokksstjórnarfund í Suðurnesjabæ.
