Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingar og forsætisráðherra hélt ræðu við setningu 47. þings Alþýðusambands Íslands á miðvikudagsmorgun. Hún hóf ræðuna á að vitna til orða Jóns Baldvinssonar, sem sagði á fundi í Gamla bíó árið 1938 að eðli verkalýðsbaráttunnar væru „ekki skyndiupphlaup, hávaðafundir og ævintýri, heldur markvisst, sleitulaust strit fyrir málefnunum sjálfum“.
Jón hafði þá verið foringi í bæði Alþýðusambandi og –flokki frá því að þessar hreyfingar voru stofnaðar árið 1916, en Kristrún sagði að á þeim tíma hefði það verið „róttæk hugmynd“ að venjulegt vinnandi fólk gæti stjórnað sér sjálft á Íslandi. Lagasetning og stjórn landsmála og allt í þá veru hefði áður verið „í höndum lítillar yfirstéttar í landinu: aðalborinna, auðmanna og menntafólks“. Í kjölfarið bað hún áheyrendur um að hugsa sér árangurinn sem hefði náðst, á þessum 110 árum.
„En verkefni verkalýðshreyfingar og jafnaðarmanna eru eilífðarverkefni: Að verja það sem áunnist hefur og sækja fram til nýrra sigra,“ sagði Kristrún einnig og vék svo að mikilvægi þess að verkalýðshreyfingin væri sameinuð.
Ekkert nýtt að styr standi um menn og málefni
„Sameinuð verkalýðshreyfing er miklu stærri en stök félög, einn flokkur eða hvað þá einstakir forystumenn í stjórnmálum eða stéttarfélögum. Og það segi ég af fullri virðingu fyrir stórum persónuleikum sem takast á innan Alþýðusambandsins – enda ekkert nýtt að það standi styr um menn og málefni í þessari hreyfingu.
En það hefur sýnt sig og er margreynt í gegnum 110 ára sögu: Við erum sterkari saman,“ sagði Kristrún og ræddi því næst um reglulega fundi hennar með forseta Alþýðusambandsins frá því að hún tók við sem formaður Samfylkingar og síðar embætti forsætisráðherra.
Þar sagðist hún hlusta, taka gagnrýni og gera sitt besta. „Við deilum um mál – en við leysum líka mál,“ sagði Kristrún og bætti við að á síðustu mánuðum hefði ríkisstjórnin átt í þéttu þríhliða samtali við ASÍ og Samtök atvinnulífsins.
„Og ég vil hrósa Alþýðusambandinu sérstaklega fyrir sína aðkomu og ábyrga nálgun í þessu verkefni – ekki síst Finnbirni Hermannssyni, fráfarandi forseta, um leið og ég þakka honum kærlega fyrir góða samvinnu og gjöfult starf í þágu verkalýðshreyfingarinnar um áratugaskeið – lengur en ég hef lifað. Það er ánægjulegt að hans drjúgu aðkomu að þessum verkstað skyldi ljúka með eins farsælum hætti og raun bar vitni í síðustu viku. Við tryggðum friðinn á vinnumarkaði. Með samstilltu átaki Og nú göngum við í verkin,“ sagði Kristrún.
Févíti, leigubremsa og þak á gjaldahækkanir
Hún nefndi svo þau stóru áherslumál verkalýðshreyfingarinnar sem stjórnvöld hafa heitið að ganga í, meðal annars innleiðingu févítis fyrir launaþjófnað, keðjuábyrgð í stórframkvæmdum, leigubremsu og minna vægi verðtryggingar – auk þeirrar samstöðu sem ríkir um 2,5% þak á gjaldahækkanir ríkis og sveitarfélaga.
„Allt þetta – á sama tíma og við klárum hallalaus fjárlög í fyrsta skipti í að verða áratug. Til að hætta að reka ríkissjóð á yfirdrætti – sem er það mikilvægasta sem ríkið getur gert til að kynda ekki undir verðbólgu. Já – ég trúi því að þetta verði vendipunktur í baráttunni við verðbólguna. Sem stendur í tæpum 6% núna en hefur verið 5% að meðaltali frá aldamótum. Við vitum öll hvaða afleiðingar hækkandi heimsmarkaðsverð á olíu hefur haft. En nú erum við að snúa við blaðinu – ef allir standa við sitt – með samstilltu átaki,“ sagði Kristrún.
Benti á verkin
Forsætisráðherra sagði svo að þegar sagt væri að stjórnmál skiptu ekki máli; að allir flokkar væru eins og baráttan skilaði engu — mætti benda á verkin á fyrstu tveimur árum ríkisstjórnarinnar:
„Lífeyrir fylgir launum, þjóðarátak í fjölgun hjúkrunarrýma og besta staða Landspítala á þessari öld.
Stóraukið viðhald á vegum, stofnun innviðafélags og fyrstu undirbúningsframkvæmdir við jarðgöng í áratug.
Fyrsta atvinnustefna Íslands, orkuöflun, einföldun regluverks, fækkun stofnana og mesta fjárfesting hjá íslensku atvinnulífi í 50 ár – að frátöldum árunum fyrir hrun.
Stækkun verknámsskóla, stjórn á útlendingamálum, fjölgun lögreglumanna, lækkun raforkuverðs í dreifbýli, betra námslánakerfi og ekkert barn á bið eftir meðferðarheimilum stjórnvalda.
Verðhækkanir á húsnæðismarkaði stöðvaðar, hlutdeildarlán sem virka, tekið á Airbnb, skrúfað fyrir skattahvata til að safna íbúðum og hæsta hlutfall fyrstu kaupenda frá árinu 2008.
Samningurinn um réttindi fatlaðs fólks. Leiðrétting veiðigjalda. Þjóðaratkvæði um aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Loforð gefin – loforð efnd. En þetta er bara byrjunin. Kjörtímabilið er hálfnað. Og við erum komin í gang,” sagði Kristrún, en bætti svo við að hún væri ekki komin á þing ASÍ til að segja fólki að allt væri fullkomið eða að allt sem gengi vel á Íslandi væri ríkisstjórninni að þakka.
„Alls ekki – enda vinnst ekkert í stjórnmálum með stórum orðum heldur aðeins með stórum verkum. Ég er líka fyllilega meðvituð um framlag forvera minna úr ýmsum flokkum. Og það eru ærin verkefni framundan. En ef við horfum á stóru myndina þá blasir við að það er margt sem við getum gert og margt sem við getum sameinast um að gera enn betur á Íslandi. Leysum mál. Brjótum niður vantraust og byggjum upp traust. Og keyrum á samstöðu – sem færir fólkið í landinu nær hvert öðru en ekki fjær. Hvort sem er í Alþýðusambandinu, í landstjórninni eða í samfélaginu í heild,“ sagði Kristrún.
Rísum undir ábyrgð og höldum áfram að sigra!
Undir lok ræðunnar sagði hún ljóst, sama hvernig á það væri litið að „stóra myndin“ hefði oft verið dekkri í stjórnmálastarfi verkalýðs og alþýðu.
„Í upphafi var Jón Baldvinsson einn síns liðs á Alþingi – til dæmis þegar Vökulögin voru samþykkt sem kváðu á um lögbundinn hvíldartíma togarasjómanna. Og á þeim tíma tókust á í verkalýðshreyfingunni lýðræðissinnaðir og byltingarsinnaðir jafnaðarmenn – sem lyktaði með klofningi. En þegar hann lést árið 1938, og mælti þau orð sem ég lagði út af í upphafi ræðunnar, þá hafði hann leitt verkalýðshreyfinguna til öndvegis við stjórn landsmála, á kreppuárunum, í Stjórn hinna vinnandi stétta.
Hugsið ykkur árangurinn og sleitulausa stritið – sem hefur lagt grunninn að farsælustu samfélögum heims hér á Norðurlöndum. Þannig lá leiðin frá vonleysi til vonar. Og frá von til sigurs. En þetta byrjaði allt með þeirri róttæku hugmynd að fólkið gæti stjórnað sér sjálft.
Við erum sterkari saman. Rísum undir ábyrgð okkar. Og höldum áfram að sigra,” sagði Kristrún Frostadóttir.
