Hagsmunahringjekja hægri flokka á Alþingi, Morgunblaðsins og Viðskiptablaðsins og ríkisstyrktu hugveitunnar Viðskiptaráðs, sem veitir öllu þessu sólkerfi reglulega súrefni með útgáfum þar sem niðurstaðan er ákveðin fyrst og greiningin svo smíðuð utan um hana, tekur á sig ýmsar myndir. Á næstu vikum verður farið yfir nokkrar útgáfur af því hvernig hún virkar, hér í Kratanum.
Eitt þeirra fyrirbæra sem þessi hópur hamast gegn er Íslandspóstur. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ítrekað lagt fram tillögur um að hann verði seldur, að hlutverki hans verði breytt eða framlag til fyrirtækisins takmarkað. Oft er þessu pakkað inn í samkeppnislegar ástæður, en raunveruleikinn er líka sá að ef Íslandspósti er rutt úr vegi þá situr fyrirtæki úr hagsmunahringekju hægrisins eitt að mikilvægum markaði.
Það fyrirtæki heitir Póstdreifing og er langstærsti einkaaðilinn í dreifingu á prentuðu efni hérlendis. Það fyrirtæki er líka hluti af Þórsmerkursamstæðunni, sem á líka Morgunblaðið og tengda miðla. Sú samstæða inniheldur raunar líka Landsprent, sem er með einokunarstöðu á dagblaðaprentun í landinu eftir að hún keypti prentsmiðju Fréttablaðsins árið 2023 og henti henni í brotajárn.
Raunar má segja að bæði Morgunblaðið sé að stefna að sama markmiði og Landsprent og Póstdreifing. Djúpir vasar sérhagsmuna hafa hent milljörðum króna í að niðurgreiða fullkomlega ósjálfsbæran rekstur Morgunblaðsins ár eftir ár svo hægt sé að annars vegar að koma pólitískum áróðri þeirra á framfæri og hins vegar svo hægt sé að sjúga súrefni af fjölmiðlamarkaði svo samkeppnisaðilar í einkaeigu deyji einn af öðrum. Lokamarkmiðið er auðvitað að ná að loka RÚV og kaupa Bylgjuna svo öll upplýsingamiðlun til landsmanna verði úr Hádegismóum.
En aftur að Íslandspósti og Póstdreifingu. Þegar Þórsmörk kynnti enn eitt árið um gegndarlaust tap á starfsemi samstæðunnar fyrr á þessu ári tók Morgunblaðið viðtal við ritstjórann sinn, Harald Johannessen, sem er líka framkvæmdastjóri Þórsmerkur. Í viðtalinu reyndi hann að útskýra mörg hundruð milljóna króna tap á árinu 2025 með því að ríkið væri svo óvæginn keppinautur „einkum með starfsemi Ríkisútvarpsins og óvæginni þátttöku þess á auglýsingamarkaði, en einnig með starfsemi Íslandspósts sem fær hátt í milljarð króna á ári til að niðurgreiða samkeppni við dótturfélag Þórsmerkur, Póstdreifingu ehf.“
Í þessu ljósi verður að skoða þá staðreynd að Morgunblaðið hefur skrifað að minnsta kosti 17 fréttir um Íslandspóst síðasta rúma eina og hálfa árið, nær allar með neikvæðum formerkjum. Þá eru ótaldir allir dálksentimetrarnir í nafnlausu níðdálkunum í Morgunblaðinu og litlu systur þess Viðskiptablaðinu sem hafa farið undir áróður gegn póstdreifingu í eigu ríkisins, og í samkeppni við dótturfélag Þórsmerkur.
