Um þessar mundir liggur frumvarp um svokallað náttúru- og innviðagjald í samráðsgátt stjórnvalda. Með því er ætlun stjórnvalda að mæta þörfinni á ríkari aðkomu ferðamanna við að standa straum af þeim kostnaði sem hlýst af auknum fjölda þeirra hérlendis.
Lengi hefur legið fyrir að hin mikla fjölgun þeirra leiddi af sér aukið álag á náttúru, samgöngukerfi, fráveitu, neyðarþjónustu og aðra innviði sem byggðir hafa verið upp og er viðhaldið að verulegu leyti fyrir skattfé þeirra sem hafa skattalegt heimilisfesti hér á landi. Af þeim tæplega 400 þúsund sem hér búa greiða nefnilega um 280 þúsund krónur skatta, eitthvað sem 2,6 milljónir ferðamanna sem heimsækja Ísland ár hvert sleppa alveg við þrátt fyrir að nýta innviði í botn á meðan á dvöl þeirra stendur.
Gjaldið á að vera 4.500 krónur yfir háannatímann og 3.000 krónur utan hans og verður einungis greitt af þeim sem eru ekki með skattalega heimilisfesti á Íslandi. Fyrst um sinn er hugmyndin að gjaldið verði greitt fyrir aðgengi að Gullfossi, Geysi og Þingvöllum, sem eru vinsælustu ferðamannastaðir landsins.
Frumvarp um málið hefur verið í samráði og fjölmörgum umsögnum var skilað inn. Nú fer það aftur til ráðuneytis sem fer yfir þær umsagnir áður en það ratar hinn hefðbundna þinglega veg.
Náttúrupassi og allt í efra þrepið
Mikilvægt er að tiltaka að þetta er alls ekki í fyrsta sinn sem tilraun er gerð til að leggja á gjöld fyrir aðgengi ferðamanna að náttúru Íslands. Árið 2015 var Ragnheiður Elín Árnadóttir, þáverandi ráðherra ferðamála fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins, gerð afturreka með tilraun til að koma á svokölluðum „náttúrupassa“. Hann var rökstuddur með því að hin mikla fjölgun ferðamanna hefðu stóraukið álag á innviði landsins. Gjaldið átti að vera 1.500 krónur, um 2.500 krónur í dag, og passinn átti að gilda í þrjú ár. Íslendingar áttu hins vegar líka að greiða fyrir hann. Almenn andstaða almennings gegn þessu felldi á endanum og Ragnheiður Elín spurði þá í viðtali: „Náttúrupassinn gekk ekki upp. Hvað viljum við þá gera? Þeir sem gagnrýndu náttúrupassann hvað mest vildu eitthvað annað. Þetta annað – það hefur heldur ekki náðst samstaða um það.“
Sjálfstæðisflokkurinn fór aftur með ferðamálaráðuneytið í ríkisstjórninni sem sat í nokkra mánuði árið 2017. Sú ríkisstjórn taldi enga ástæðu vera til að fara í náttúrupassann á ný þar sem til stóð, samkvæmt uppleggi þeirrar stjórnar, að færa alla ferðaþjónustuna upp í efra þrep virðisaukaskatts frá 1. júlí 2018. Frá 1. janúar 2019 átti svo að lækka það þrep úr 24 í 22,5 prósent sem hluta af þessari breytingu.
Sú ríkisstjórn féll með látum haustið 2017 og við tók kyrrstöðustjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Í stjórnarsáttmála hennar sagði að áform um „hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustu verða lögð til hliðar en aðrar leiðir til gjaldtöku kannaðar í samráði við greinina, m.a. möguleikar á álagningu komu- eða brottfarargjalds.“ Ekkert af þessu varð að veruleika og því frestaðist ákvörðun um aukna gjaldtöku á ferðaþjónustu enn inn í framtíðina.
Það var staðan sem núverandi ríkisstjórn tók við fyrir tæpum tveimur árum. Í stjórnarsáttmála hennar sagði að hún hygðist „taka upp auðlindagjald fyrir aðgang að náttúruperlum Íslands“. Samhliða hefur hún unnið að því að draga úr skattastyrkjum til ferðaþjónustu, en atvinnugreinin tekur til sín 21 prósent af öllum slíkum sem veittir eru úr ríkissjóði, með því að færa baðlón í sama virðisaukaskattsþrep og til að mynda útleiga bílaleigubíla er í.
Hagsmunasamtök í ferðaþjónustu hafa verið afar mótfallin því að komugjöld verði lögð á og ákvað ríkisstjórnin að stíga skref til að ná því fram sem þeim ríkisstjórnum sem setið höfðu frá árinu 2013 hafði mistekist, að leggja gjöld á fyrir aðgengi að náttúru Íslands með náttúru- og innviðagjaldi fyrir ferðamenn á fjölförnustu ferðamannastaði landsins.
