Sjálfstæðismaður gerir Kratann heimsfrægan á Íslandi

Enginn stjórnmálaflokkur hefur staðið fyrir jafn víðtækri miðlunarstarfsemi á Íslandi og Sjálfstæðisflokkurinn.

Undanfarin ár og misseri hefur hann staðið fyrir hlaðvarpinu Hægri hliðinni (hlaðvarp Sjálfstæðisflokksins), hlaðvarpinu Pólitíkinni (um sjónarmið Sjálfstæðisfólks), hlaðvarpsþættinum Bláu könnunni (hlaðvarpi þingflokks Sjálfstæðisflokks), umræðuhlaðvarpinu Gjallarhorninu (á vegum Heimdallar), hlaðvarpinu Velferðin (á vegum velferðarnefndar flokksins), hlaðvarpinu Loftslagsráð (á vegum loftslagsráðs Sjálfstæðisflokks), hlaðvarpinu Verkalýðsarmurinn (þáttaröð um stjórnmál frá sjónarhóli Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokks), hlaðvarpinu Óli Björn – Alltaf til hægri (þar sem þingmaðurinn fyrrverandi fjallaði árum saman um sjálfan sig og helstu áhugamál), Stjórnmálin með Bryndísi (þar sem Bryndís Haraldsdóttir hefur fengið til sín gest til að ræða pólitík), hlaðvarpinu Njáll Trausti – Næstu skref (hvar Njáll Trausti horfir til framtíðar) og Vilhjálmur Árnason: Í beinni frá Alþingi (þar sem fyrrverandi þingmaðurinn sendi út vikulegan þátt í beinni frá Alþingi).

Þess utan var gefin út sérstök þáttaröð tileinkuð 95 ára afmæli flokksins og 80 ára afmæli íslenska lýðveldisins, undir þeim formerkjum að þarna væri agalega samofin saga.

Halda á pólitískri orðræðu en væla hástöfum yfir að sitja ekki ein að henni

Þá er auðvitað ótalið að Morgunblaðið, rekið með mörg hundruð milljóna króna meðgjöf á ári, og Viðskiptablaðið ganga í fullum takti við flokkinn í öllum þeim málum sem skila jákvæðri efnahagslegri niðurstöðu fyrir eigendur þeirra fjölmiðla. Og öll hægrihlaðvarpahirðin í Þjóðmálum, Spursmálum, Einni Pælingu, Brotkasti og meira að segja helstu fótboltavörpunum þar sem línan er aðeins og einvörðungu í takti við hagsmunahægri Sjálfstæðisflokksins.

Á öllum þessum vettvöngum fer reglulega fram framsetning á stækum pólitískum áróðri, gaslýsingar og aflutningur á því sem hentar ekki hægrinu og tuddalegt níð á nafngreindu fólki sem er ósammála í pólitík.

Þrátt fyrir að halda meira og minna á pólitískri orðræðu gera Sjálfstæðismenn lítið annað en að væla yfir öllum öðrum sem tala um stjórnmál. Þeir vilja sitja einir að henni og eru friðlausir í frekjuköstum yfir því að þannig sé staðan ekki.

Grátkór þeirra yfir tilvist RÚV eftir að þeir hættu að geta rekið það batterí eftir eigin hentugleika er vel þekkt stærð sem birtist í endalausum tilraunum til að leggja það niður.

Varaþingmaður með böggum hildar yfir Kratanum

Það vakti hins vegar athygli í vikunni þegar Tómas Þór Þórðarson, starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokks og varaþingmaður hans, hélt ræðu á þingi í vikunni fulla af heilagri vandlætingu um að flokkurinn hans byggi, að hans mati, leigulaust í höfði ríkisstjórnarinnar og Samfylkingarinnar „sem þessa dagana hamrar þannig lyklaborðið á óskráðum fjölmiðli sínum um allt sem Sjálfstæðisflokkurinn segir og gerir […] Ég skil að þetta særi stoltið, ég átta mig fyllilega á því, en að taka það út á stjórnarandstöðunni með skítkasti og stundum hreinu bulli er lítilmannlegt.“

Ræðan vakti mikla kátínu á ritstjórn Kratans, vettvangs sem var stofnaður í kringum það sameiginlega verkefni að bæta samfélagið og koma skilaboðum jafnaðar á framfæri í kraðaki harðar-hægri villu.

Ef miðill sem okkar, sem Tómas var augljóslega að vitna til, er að skjóta sjálfstæðisfólki eins og Tómasi jafn miklum skelk í bringu og raunin virðist vera þá erum við sannarlega að gera eitthvað rétt.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading