Síðustu daga hefur náðst sátt á almenna vinnumarkaðinum milli aðila hans um að láta kjarasamninga halda. Aðkoma ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur lék lykilhlutverk í þeirri niðurstöðu. Hún fólst bæði í að miðla málum og leggja fram aðgerðarpakka sem hafði það markmið að vera ekki eins og ófjármögnuðu tugmilljarða króna gúmmítékkar síðustu ríkisstjórnar, verndar markmiðið um hallalaus fjárlög, kom með mikilvæga innspýtingu á húsnæðismarkað og stórbætir réttindi launafólks með hætti sem verkalýðshreyfingin hefur kallað eftir árum saman og samfélagið allt mun hafa hag af. Allt eru þetta stórir sigrar í anda kjarnastefnu jafnaðarfólks sem við getum verið stolt af.
Með niðurstöðunni er áframhaldandi friður á vinnumarkaði tryggður, ávinningur kjarasamninga verndaður og samstaða mótuð til að negla niður verðbólgu og vexti á allra næstu mánuðum.
Hér eru ellefu atriði sem þú þarft að vita um aðkomu ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að því að láta kjarasamninga halda:
- Kjarasamningarnir og kaupmátturinn eru undir: Stöðugleikasamningarnir frá 2024 voru gerðir til fjögurra ára með það að markmiði að ná niður verðbólgu og vöxtum. Verðbólga hefur hins vegar verið meiri en forsendur þeirra leyfa og því skapaðist réttur til að segja þeim upp. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar miða að því að halda samningunum á lífi, verja ávinning launafólks og skapa skilyrði fyrir lægri vöxtum. Það skiptir miklu máli fyrir heimili sem finna daglega fyrir háum framfærslukostnaði. Ekkert mun fjölga krónunum í vasa fólks hraðar en lægri vextir.
- Ríkið setur 2,5 prósenta þak á gjaldahækkanir: Almenn krónutölugjöld ríkisins og gjaldskrár ríkisstofnana sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs eiga ekki að hækka um meira en 2,5 prósent árið 2027. Með því heldur ríkið aftur af eigin framlagi til verðbólgunnar. Kílómetragjaldið er undanskilið vegna breytinga á gjaldtöku ökutækja, en fyrirhuguð tekjuaukning vegna þess hefur þegar verið lækkuð úr 7,5 milljörðum króna í fjóra milljarða umfram verðlag. Gjaldið verður því hækkað minna en til stóð í fjármálaáætlun tveggja síðustu ríkisstjórna.
- Sveitarfélög og fyrirtæki þurfa líka að leggja sitt af mörkum: Ríkisstjórnin, ASÍ, Samtök atvinnulífsins (SA) og Samband íslenskra sveitarfélaga leggja upp með sameiginlegt átak gegn verðbólgu. Samband sveitarfélaga hvetur sveitarfélög til að halda almennum gjaldskrárhækkunum innan 2,5 prósenta og SA hvetur aðildarfyrirtæki sín til að halda aftur af verðhækkunum. Sambærileg tilmæli fara til fyrirtækja í opinberri eigu. Árangurinn veltur á því að þessir aðilar fylgi orðunum eftir.
- Friður á vinnumarkaði á að fara saman við hallalaus fjárlög: Viðbótaráhrif aðgerðanna á afkomu ríkissjóðs árið 2027 eru um 1,5 milljarðar króna vegna minni tekna af krónutölugjöldum. Aðrar fjárhagslegar aðgerðir þess árs rúmast innan þess sem þegar hefur verið gert ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu eða uppsafnaðra fjárheimilda. Skilyrtar vaxtabætur kæmu til greiðslu árið 2028. Ríkisstjórnin heldur því fast við markmiðið um hallalaus fjárlög 2027, enda á aðkoman að styðja baráttuna gegn verðbólgu.
- Barnabætur hækka og stuðningurinn verður fyrirsjáanlegri: Fjárhæðir barnabóta eiga að hækka um tíu prósent árið 2027 og skerðingar minnka. Heildarfjárhæð barnabóta verður þá 21 milljarður króna. Um fjögurra milljarða króna kostnaður við breytingarnar er þegar inni í fjárlagafrumvarpinu. Frá 2028 á þróun barnabóta síðan að fylgja sömu reglu og þrepamörk tekjuskatts. Þannig verður stuðningi við barnafjölskyldur komið í fastari skorður milli ára.
- Ríkið tekur stærra hlutverk svo hagkvæmar íbúðir komist í byggingu: Ríkisstjórnin ætlar að fá tímabundna heimild til að fjármagna stofnframlög sveitarfélaga til almennra íbúða út árið 2027. Þannig getur uppbygging haldið áfram þar sem sveitarfélög hafa ekki verið að leggja fram sinn hlut. Aðgerðin felur í sér stofnframlög upp á sjö milljarða króna alls, þar af um 2,4 milljarða vegna hlutans sem ríkið tekur yfir. Að minnsta kosti tveir þriðju úthlutunarfjár eiga áfram að renna til íbúða fyrir tekju- og eignalága leigjendur á vinnumarkaði. Aðgerðinni fylgir ekki kostnaðarauki fyrir ríkissjóð þar sem uppsafnaðar fjárheimildir verða nýttar.
- Leigjendur eiga að fá frið frá mánaðarlegum leiguhækkunum: Með breytingum á húsaleigulögum á að banna mánaðarlega vísitölutengingu leigu og tryggja að að minnsta kosti tólf mánuðir líði milli reglubundinna hækkana. Það veitir leigjendum meiri fyrirsjáanleika um einn stærsta útgjaldalið heimilisins. Þá á að endurskoða reglur um húsaleigutryggingar, skýra meðferð tryggingarfjár og gera endurgreiðslur fyrirsjáanlegri.
- Skuldsett heimili fá stuðning ef verðbólguforsendur bresta aftur: Áformaðar eru einskiptisvaxtabætur í upphafi árs 2028 ef ársverðbólga fer yfir tiltekin viðmið í lok október 2027. Heildarfjárhæðin verður 1,3 milljarðar króna ef verðbólga er yfir 3,8 prósentum, tveir milljarðar ef hún er yfir fjórum prósentum og þrír milljarðar ef hún er yfir fimm prósentum. Stuðningurinn er því skilyrtur og á að mæta álagi á skuldsett heimili ef verðbólgan reynist þrálátari en vonir standa til.
- Það á að hafa afleiðingar að greiða fólki minna en því ber: Ríkisstjórnin ætlar að leggja fram frumvarp um févíti vegna vangreiddra lágmarkskjara samkvæmt kjarasamningum. Það á að styrkja rétt launafólks og gera brot á kjörum þess kostnaðarsamari. Jafnframt verður unnið að keðjuábyrgð í stærri verklegum framkvæmdum, breytingum á Ábyrgðarsjóði launa og reglum sem koma í veg fyrir að lágmarkskjör falli niður vegna tómlætis. Þannig styrkist bæði staða starfsfólks og samkeppnisstaða fyrirtækja sem virða kjarasamninga.
- Dregið verður úr kostnaðarþrýstingi og sjálfvirkum verðhækkunum: Ríkið og aðilar vinnumarkaðarins ætla að móta tillögur um einfaldara regluverk fyrir janúar 2027 til að létta byrðar í atvinnurekstri. Samhliða verður ráðist í aðgerðir til að draga úr vægi sjálfvirkra verðbreytinga. Ríkisstjórnin tryggir einnig fjármögnun heildarsöfnunar launaupplýsinga frá 2027. Betri upplýsingar eiga að styrkja sameiginlegan grunn við ákvarðanir um laun og kjarasamninga.
- Fólk á að fá stuðning áður en það festist utan vinnumarkaðar: Fyrir árslok 2026 á að liggja fyrir viðbragðsáætlun gegn vaxandi atvinnuleysi, með áherslu á stuðning og virkar vinnumarkaðsaðgerðir. Markmiðið er að draga úr langtímaatvinnuleysi og koma í veg fyrir brotthvarf af vinnumarkaði. Samhliða verður áfram unnið að útfærslu nýs örorkubótasjóðs vinnumarkaðarins. Að verja kjarasamninga felur líka í sér að styðja fólk til þátttöku og tryggja að það verði ekki skilið eftir.
