Við birtum í dag nýjan þátt af hlaðvarpi Kratans. Þessa vikuna fengu Arnar og Valur góða gesti í hús, tvo ung-krata, þá Arnar Inga Ingason og Jóhannes Óla Sveinsson forseta Ungs jafnaðarfólks.
Til umræðu voru tímamótaræða Andy Burnham, yfirlýsing formanns Sjálfstæðisflokks um að það styttist mögulega í kosningar, staðan í stjórnarmyndun hjá sænsku Sossunum – og því tengt, kálfarnir á Ulf Kristersson, úttekt Vinnueftirlitsins á stólum borgarfulltrúa og tilraunir nýs meirihluta í Reykjavíkurborg til þess að gera borgina leiðinlegri með því að vísa listamönnum á dyr.
Hér er löngu tímabært framlag Kratans til manosphere-bylgjunnar, gjörið svo vel.
