Fylgi Samfylkingarinnar mælist 30,9 prósent í nýjasta þjóðarpúlsi Gallup sem er langmesta fylgi allra flokka. Það er mesta fylgi sem Samfylkingin hefur mælst með síðan í janúar á þessu ári og myndi skila flokknum átta fleiri þingmönnum en hann hefur í dag, eða 23. Síðan í júní hefur Samfylkingin bætt við sig 4,7 prósentustigum af fylgi en eini flokkurinn á þingi sem bætti líka við sig á tímabilinu er Framsókn, sem fór úr 5,5 í 5,9 prósent. Verst er staða þess flokks í Reykjavíkurkjördæmi norður þar sem fylgið mælist einungis 1,1 prósent.
Á sama tíma hefur fylgi bæði Sjálfstæðisflokks og Miðflokks lækkað lítillega. Framsóknarflokkurinn myndi rétt skríða inn á þing miðað við stöðuna í dag með fjóra þingmenn sem er einum færri en hann hefur nú. Þessir flokkar lögðust hart á árarnar með Nei-inu gegn áframhaldandi viðræðum við Evrópusambandið í sumar og virðast ekki hafa hagnast neitt á því ef slíkur hagur er mældur í áhuga kjósenda á að greiða þeim atkvæði sitt.
Flokkarnir sem standa að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur bæta við sig fylgi milli mánaða og stuðningur við stjórnina mælist 49 prósent.
Samfylkingin er stærsti flokkur landsins í fjórum kjördæmum af sex. Mest mælist fylgið í Reykjavíkurkjördæmi norður þar sem 36,8 prósent kjósenda segjast styðja flokkinn. Samfylkingin nýtur einnig mestrar hylli hjá öllum aldurshópum, kynjum og hjá fólki á öllum menntunarstigum.
Þá nýtur flokkur jafnaðarfólks mests stuðnings hjá öllum tekjuhópum, en þeim er skipt niður í sjö flokka frá þeim sem hafa minnst á milli handanna og upp í þá sem þéna mest.
Frá því að síðast var kosið seint á árinu 2024 hefur Samfylkingin bætt við sig tíu prósentustigum af fylgi samkvæmt niðurstöðum Þjóðarpúlsins. Það fylgi hefur að mestu komið frá fólki sem kaus Pírata, Vinstri græn eða Sósíalistaflokk Íslands í síðustu kosningum, þriggja flokka sem náðu ekki inn á þing í þeim.
Sú staða hefur ekkert breyst. Enginn þeirra myndi ná inn á þing ef kosið yrði í dag og því myndi samanlagt magn atkvæða greitt þeim, samtals 8,8 prósent, falla niður dauð.
