Sjávarflóð fái umgjörð á við aðra náttúruvá

Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingar hefur lagt fram að nýju þingsályktunartillögu sem miðar að því að ríkisstjórnin endurskoði lagalega umgjörð sem snertir sjávarflóð og aðra náttúruvá.

Á meðal þess sem Dagur og þrettán aðrir þingmenn Samfylkingar, Framsóknarflokks, Viðreisnar og Flokks fólksins leggja til, er að ríkisstjórnin láti meta hvort umgjörð og lög um ofanflóð og ofanflóðasjóð henti einnig sem umgjörð um áhættumat, áætlunargerð og fjármögnun innviða og aðgerða vegna sjávarflóða.

Lagt er til að markmið þessarar endurskoðunar sé að lagt verði fram frumvarp um varnir gegn sjávarflóðum, með lögum sem nái til ofanflóða og sjávarflóða sameiginlega eða þá í einni heildarlöggjöf um náttúruvá, auk þess að málaflokkum ofan- og sjávarflóða og hugsanlega annarrar náttúruvár verði fundinn staður í einu ráðuneyti, til að hámarka skilvirkni. Einnig er lagt til að sama stofnun beri ábyrgð á áhættumati sjávarflóða, ofanflóða og annarri náttúruvá

Til viðbótar er eitt markmiðanna í þingsályktunartillögunni að stofnaður verði sérstakur sjóður um sjávarflóð, eða þá að starfssvið ofanflóðasjóðs verði útvíkkað til að ná utan um sjávarflóð.

Hækkun sjávarborðs ein helsta ógnin

Í greinargerð með tillögunni segir að sjávarflóð og öfgar í veðri séu hluti af loftslagsbreytingum á Íslandi og á heimsvísu sem gera þurfi ráð fyrir, leggja mat á og búa samfélagið undir að geti aukist.

Bent er á að beðið sé eftir heildstæðrar áætlunar stjórnvalda um aðlögun að loftslagsbreytingum og vísað til skýrslu sem Reykjavíkurborg gaf út árið 2017, um áhættuþætti loftslagsbreytinga í Reykjavík. Í henni kom fram að hækkun sjávarborðs væri ein helsta ógnin í sveitarfélaginu af völdum loftslagsbreytinga. Álykta má að önnur sveitarfélög við ströndina búi við sömu hættu.

„Sambland af landsigi á suðvesturhorni landsins og hækkandi sjávarstöðu veldur því að sjór gengur lengra inn á land og eykur líkur á tjóni þegar krappar lægðir og há sjávarstaða fara saman,“ segir í greinargerð með tillögunni.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading