Hraðari orkuskipti styrkja Ísland

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra skrifar:

Hraðari orkuskipti í vegasamgöngum eru eitt af fjórum forgangsverkefnum ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum sem ég kynnti í september 2025. Nú ári síðar er við hæfi að gefa stutta skýrslu um það sem hefur áunnist á tólf mánuðum.

Í fyrsta lagi réðumst við í stærstu orkuskiptaúthlutun sögunnar úr Loftslags- og orkusjóði síðasta haust með 800 milljóna stuðningi við uppsetningu hleðsluinnviða um allt land. Í ársskýrslu sjóðsins 2025 er áætlað að þessi verkefni og fleiri stuðli að olíusparnaði sem nemur 23 milljónum olíulítra á ársgrundvelli og hafi 2% áhrif til lækkunar á samfélagslosun Íslands.

Í öðru lagi felldum við niður vörugjöld af nýjum rafbílum síðustu áramót samhliða öðrum breytingum á gjaldtöku ökutækja og eldsneytis. Fyrir vikið hefur hlutfall rafbíla af nýskráðum bílum aukist í hverjum einasta mánuði ársins 2026 miðað við sama mánuð í fyrra.

Í þriðja lagi réðumst við í sérstakt átaksverkefni til þess að stoppa í götin á þjóðvegum landsins þannig að hvergi verði meira en 100 km á milli hraðhleðslustöðva. Þetta er strax að raungerast með styrkjum til uppsetningar 21 hleðslustöðvar á landsbyggðinni en jafnframt er opið fyrir styrkumsóknir vegna uppsetningar hleðsluinnviða við eldri fjölbýlishús og gististaði um allt land.

Í fjórða lagi gerðum við nauðsynlegar reglugerðarbreytingar til þess að koma stuðningi stjórnvalda við orkuskipti í þungaflutningum í fastari skorður og auka fyrirsjáanleika fyrir atvinnulíf.

Í fimmta lagi gerðum við það að skilyrði fyrir styrkveitingum til uppsetningar hleðslustöðva að hægt sé að greiða með greiðslukorti í stað snjallforrita. Þá er í gangi almennari vinna við að vinda ofan af snjallforritafrumskóginum sem rafbílaeigendur villast gjarnan í, burt með hann takk.

Þetta er auðvitað ekki tæmandi listi yfir orkuskiptaaðgerðir stjórnvalda, og árangurinn af hinum þremur forgangsverkefnum ríkisstjórnarinnar í loftsagsmálum er efni í aðrar greinar. Almennt miðar vinnunni vel og afraksturinn mun birtast í losunartölum Íslands á næstu árum.

Orkuskipti í vegasamgöngum eru ekki aðeins loftslagsmál heldur líka grjóthart efnahagsmál. Bensínverð er hátt á Íslandi en raforkuverð er með því sem lægsta sem gerist í heiminum. Þannig er rekstrarsparnaðurinn af því að skipta yfir á rafbíl óvíða meiri en á Íslandi, og með hraðri fjölgun hleðslustöðva eru skilyrðin til þess orðin betri en nokkru sinni fyrr.

Ábatinn af hraðri rafbílavæðingu er líka gríðarlegur fyrir þjóðarbúið og samfélagið í heild. Þegar við skiptum dýru, óhreinu og innfluttu jarðefnaeldsneyti út fyrir hreina íslenska orku spörum við gjaldeyri, bætum loftgæði og treystum orkufullveldi og samkeppnishæfni Íslands.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 26. september.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading