Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar – jafnaðarflokks Íslands verður haldinn í Samkomuhúsinu í Sandgerði í Suðurnesjabæ laugardaginn 10. október.
Boðið verður upp á rútuferð fyrir alla félaga frá Reykjavík kl. 9:30 frá bílastæðinu við Hús verslunarinnar. Rútan mun keyra beint í Reykjanesbæ á fund Verkalýðsmálaráðs Samfylkingarinnar sem hefst kl. 10:30.
Gestur fundarins er Finnbjörn Hermannsson forseti Alþýðusambands Íslands og mun hann ásamt öðrum góðum gestum ræða um stöðu kjarasamninga.
Að fundi loknum verður ekið að Samkomuhúsinu í Sandgerði þar sem flokksstjórnarfundurinn verður haldinn, en á meðal þess sem liggur fyrir flokksstjórn er kjör nýs varaformanns Samfylkingarinnar.
Að fundi loknum verður slegið upp Októberfest, pretzel, pylsur og sauerkraut verða á boðstólum. Hobbitarnir frá Suðurnesjum sjá um að skemmta gestum. Dúettinn skipa þeir Ólafur Þór Ólafsson og Hlynur Þór Valsson sem eru „heimsfrægir” í Suðurnesjabæ en hafa spilað um allt land í gegnum tíðina við góðan orðstír.
Rútan ekur síðan aftur til Reykjavíkur kl. 23 eftir skemmtun og mat.
Skráning á bæði flokksstjórnarfundinn og í rútuna fer fram hér.
Helstu tímasetningar
09:30 – Lagt af stað frá Reykjavík með rútu
10:30 – Fundur Verkalýðsmálaráðs
12:00 – Húsið opnar, skráning og hádegismatur
12:30 – Fundur settur
14:15 – Kynningar frambjóðenda til varaformanns
14:30 – Kaffihlé og kosning- veitingar frá kvenfélaginu Gefn
17:00 – Fundi slitið
17:00 – 23:00 – Gleðistund, kvöldmatur og skemmtiatriði
23:00 – Rúta til Reykjavíkur
Nánari upplýsingar má finna á Facebook.
