Enn er logið um fjárhag Reykjavíkur svo hægt sé að selja innbúið

Ný borgarstjórn hægri flokka tók við völdum í Reykjavík í júní. Það gerðist í kjölfar þess að hægri flokkarnir, fjölmiðlarnir sem ganga erinda þeirra og hagsmunagæsluaðilar sem dansa í fullum takti höfðu linnulaust og árum saman farið með þá lygi að í Reykjavík væri allt í kalda koli fjárhagslega. Það fylgdi oft sögunni, sérstaklega í makalausri framsetningu Morgunblaðsins, að Reykjavík væri í mun verri málum en sveitarfélög sem Sjálfstæðisflokkurinn stýrði á höfuðborgarsvæðinu.

Allt er þetta rangt og hrekjanlegt með glerhörðum staðreyndum.

 Fjárhagslegt heilbrigði Reykjavíkur hefur árum saman, undir stjórn félagshyggjufólks, verið mun meira en hjá nágrönnunum. Áróður án innistæðu. Mergur málsins er sá að Reykjavík er eina sveitarfélag höfuðborgarsvæðisins sem hefur getað rekið sig með sjálfbærum hætti, án þess að brúa stanslaust bilið með umfangsmikilli lóða- eða eignasölu.

Reykjavík hefur átt fyrir skuldum og fjárfestingu

Ef horft er á þann hluta borgarsjóðs sem fjármagnaður er fyrir skattfé þá liggur fyrir að skuldir á hvern íbúa og skuldahlutfall borgarinnar var það næstlægsta á höfuðborgarsvæðinu um síðustu áramót. Því er bábiljan um ofurskuldsetningu Reykjavíkur kolröng.

Ef horft er á veltufé frá rekstri og veltufjárhlutfall, mælikvarða sem mæla getu sveitarfélaga til að standa við afborganir lána og undir fjárfestingu á árinu, var staðan langbest í Reykjavík. Hún er til að mynda eina sveitarfélagið á svæðinu með veltufjárhlutfallið yfir 1,0 sem þýðir að hún getur staðið undir ofangreindu án þess að taka lán eða selja eignir.

Grunnrekstur í plús en fiktað í reikningi til að hann líti verr út

Nýja borgarstjórnin hefur eytt miklu púðri í að mála upp hálfsársuppgjör borgarinnar í ár sem einhverja hörmung. Allt er þetta gert í þeim tilgangi að barna þá pólitísku lygi að Reykjavík sé í raun gjaldþrota, að það þurfi að skera verulega niður þjónustu vegna þessa, hamla nauðsynlegum fjárfestingum í almannasamgöngum og á endanum selja eignir upp í skuldir. Á baki þessa hefur borgarstjórnin ráðist í einhverjar umfangsmestu fjöldauppsagnir sem sögur fara af hérlendis.

Þegar uppgjörið er hins vegar skoðað án hægrigláku kemur í ljós að undirliggjandi tölur eru í fínu lagi. Veltufé frá rekstri er 7,9 prósent af tekjum sem er hærra hlutfall en um liðin áramót. Til samanburðar er veltufé frá rekstri í Hafnarfirði, þar sem Samfylkingin er nú loks mætt aftur til að taka til, 0,2 prósent. EBITDA-hagnaður (fyrir fjármagnskostnað, skatta og afskriftir) var jákvæður um 7,9 milljarða króna sem var umfram áætlun. Á mannamáli þýðir það að grunnreksturinn var í plús.

Það sem dró niðurstöðuna niður, og gerði það að verkum að borgin tapaði 3,2 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins, var annars vegar reikningsleg gjaldfærsla vegna afskrifta upp á tvo milljarða króna (meðal annars vegna hjúkrunarheimila sem færðust yfir til ríkisins), þess að umtalsverðar arðgreiðslur voru færðar yfir á síðari hluta ársins og hins vegar að fjármagnskostnaður var 1,9 milljörðum krónum umfram áætlun vegna hærri verðbólgu.

Vilja selja mikilvægar eignir svo aðrir geti grætt á þeim

Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið skýr með að hann vilji selja fullt af eignum borgarinnar svo aðrir geti hagnast á þeim en borgarbúar. Á meðal þess sem er fyrirliggjandi er að:

  • Flokkurinn ætlar að selja mikilvæg fyrirtæki úr samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur. Á landsvísu hefur flokkurinn boðað að hann vilji selja stóra hluti í Rarik og Landsneti.
  • Flokkurinn vill leggja niður almenna íbúðarkerfið og selja mörg þúsund félagslegar íbúðir sem veita lágtekjufólki og viðkvæmum hópum þak yfir höfuðið, án þess að nokkuð komi í staðinn.
  • Flokkurinn vill selja bílastæðahús borgarinnar, sem kosta í dag einn þriðja eða einn fjórða af því sem kostar að leggja í slík hús í einkaeigu, til aðila sem vilja græða á útleigu bílastæða.
  • Flokkurinn vill selja Malbikunarstöðina Höfða sem sér um flestar malbikunarframkvæmdir í Reykjavík, tryggir borginni besta mögulega verð og tryggir virka samkeppni á þeim markaði.

Það er ágætt að muna þetta næst þegar fulltrúar hægrisins í borgarstjórn tala næst um fjárhagsstöðu borgarinnar. Tilgangurinn þar er að tala niður stöðuna svo hægt sé að breyta mikilvægustu innviðafyrirtækjum okkar í einkarekin gróðafyrirtæki með þeim afleiðingum að verð mun hækka, hagnaður fer til fárra einkaaðila í stað þess að fara í samfélagslega uppbyggingu og yfirráð yfir nauðsynlegri fjárfestingu og ákvörðun um hvert orka er seld fer frá fulltrúum almennings til fulltrúa sérhagsmuna.

,

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading