Leikskólamálið lagt fram í sjötta og vonandi síðasta sinn

Dagbjört Hákonardóttir þingmaður Samfylkingar hefur lagt fram frumvarp sitt um innritun í leikskóla fram á Alþingi í sjötta skipti.

Frumvarpið leggur til þá breytingu á lögum um leikskóla að sveitarfélögum verði heimilt að haga innritun með tilliti til þess að systkini eða börn sem hafa sama lögheimili geti sótt sama leikskóla. Einnig er lagt til að sveitarstjórnum verði heimilt að taka tillit til nálægðar leikskóla við lögheimili barna, við innritun.

Þetta leggur Dagbjört til í sjötta sinn á Alþingi, nú með stuðningi þingmanna Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins.

„Ég vona heitt og innilega að ég þurfi ekki að leggja það fram aftur,“ sagði hún í flutningsræðu sinni í síðustu viku, áður en málið gekk til allsherjar- og menntamálanefndar þingsins.

„Ég á ekki lengur börn á leikskóla og sé ekki fyrir mér að eiga þau aftur. En ég mun aldrei hætta að hafa áhuga á leikskólanum,“ sagði Dagbjört er hún ræddi málið í hlaðvarpsþætti Kratans síðasta vetur.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading