„Ég á ekki lengur börn á leikskóla og sé ekki fyrir mér að eiga þau aftur. En ég mun aldrei hætta að hafa áhuga á leikskólanum.“ Þetta segir Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, í viðtali við hlaðvarp Kratans vegna frumvarps hennar um systkinaforgang á leikskóla sem er nú lagt fram í fimmta sinn.
Dagbjört segir að leikskólamálin séu lykilatriði í hennar velferðarpólitík. „Í minni pólitík sem femínisti, jafnaðarkona. Ég tel að íslenska leikskólamódelið hafi gert okkur kleift að búa til samfélag sem er framúrskarandi í jafnréttismálum, þó að það sé svolítið langt í frá að vera fullkomið. Stóra eldsneytið inn í það að endurreisa þetta kerfi er að það vilja allir að þessi þjónusta sé til staðar og hún sé góð. Að börnin okkar séu örugg. Að þetta sé samkeppnishæfur vinnustaður.“
Hægt er að sjá frumvarpið, sem allir almennir þingmenn Samfylkingarinnar standa að ásamt Dagbjörtu, með því að smella hér.
Hægt er að hlusta á viðtalið í heild í nýjasta hlaðvarpi Kjarnans hér að neðan.
