Alma Möller heilbrigðisráðherra sagðist, í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á miðvikudag, hafa kosið orðið innviðaskuld sem orð ársins um síðustu áramót. Það hefði ekki verið að ástæðulausu.
„Undanfarna áratugi hefur myndast mikil innviðaskuld í heilbrigðiskerfinu sem endurspeglast í skorti á starfsfólki, húsnæði, tækjakosti og rafrænum kerfum ásamt löngum biðlistum. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur heitið því að styrkja stoðir heilbrigðis- og öldrunarþjónustu um land allt,“ sagði Alma í inngangi ræðu sinnar.
Því næst fór hún yfir sviðið og nefndi að geðheilbrigðisþjónusta og fíknimeðferð hefði verið efld til muna á síðastliðnu ári. Kyrrstaða í uppbyggingu hjúkrunarheimila hefði verið rofin, svo um munar. Það væri farið að endurspeglast í betri stöðu á Landspítala.
„Áfram er unnið að því markmiði að fá fastan markmiði um heimilislækni fyrir alla. Árangur hefur þegar náðst en verkefnið mun taka tíma því hér vantar á annað hundrað heimilislækna. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að styrkja myndarlega við sérnám lækna,“ sagði Alma, sem nefndi einnig að áhersla væri á nýtingu tækni og gervigreindar, stafræna þróun og nýsköpun – auk þess sem verið væri að stíga fyrstu skrefin inn í framtíðina með hagnýtingu erfðaupplýsinga.
Íslenskt samfélag á að taka utan um börnin
Alma lagði mikla áherslu á málefni barna í ræðu sinni og sagði að eitt mikilvægasta og arðbærasta verkefni hvers samfélags væri að hlúa að börnum. Hún ræddi um að það væri blikur á lofti varðandi depurð, kvíða og einmanaleika. Einnig værum við að sjá hegðunarvanda, ofbeldi og fíkn.
„Börn eiga ekki að bíða eftir þjónustu. Þess vegna hefur stytt bið eftir greiningu og meðferð verið forgangsverkefni hjá mér frá fyrsta degi. Þar eru mörg flókin og tímafrek verkefni undir, en árangur er í augsýn,“ sagði Alma og nefndi svo sérstaklega að í haust væri að hefjast skimun í grunnskólum til að ná til barna sem þurfa stuðning í kjölfar ofbeldis.
„Þau munu svo fá viðeigandi þjónustu í Bryndísarhlíð sem opnar í febrúar og hjá nýju áfallateymi barna á Landspítala,“ sagði Alma – en bætti við að vaxandi vandi yrði ekki leystur með meðferðarúrræðum einum og sér.
„Við verðum að ráðast að rótum vandans og snúa þróuninni við. Líkur eru á að þar skipti notkun net- og samfélagsmiðla miklu, einnig óhollir lifnaðarhættir eins og of lítil hreyfing, óhollt mataræði, orkudrykkir, nikótínvörur og aukið aðgengi að áfengi og vímuefnum. Mín þingmál snúa meðal annars að lýðheilsu barna og vörnum gegn nikótíni,“ sagði Alma.
Hún vék einnig að því einkenni vanlíðunar mældust almennt meiri hjá börnum sem teldu fjölskyldu sína búa við slæma fjárhagslega stöðu.
„Ég er stolt af að starfa í ríkisstjórn sem vill útrýma fátækt og styðja við þau sem höllustum fæti standa,“ sagði Alma Möller.
