Óhætt er að segja að jákvæð tíðindi hafi borist af málefnasviði Ölmu Möller heilbrigðisráðherra í síðustu viku. Í fyrsta lagi var tilkynnt að loksins, loksins, væri búið að taka upp samræmdar reglur um blóðgjöf fyrir alla einstaklinga, óháð kyni eða kynhneigð. Íslenskir hommar geta því í fyrsta sinn orðið blóðgjafar og hafa tekið því fagnandi. Þetta er afleiðing innleiðingar á nýju einstaklingsbundnu áhættumati Blóðbankans.
Alma sagði þetta langþráðan áfanga: „Við aukum öryggi blóðþega og stækkum hóp blóðgjafa. Verklagsreglur verða skýrar um að óheimilt sé að vísa blóðgjöfum frá á grundvelli kynhneigðar en skýr skilyrði sett um ábyrga kynhegðun allra blóðgjafa, óháð kynhneigð og kyni“.
Með þessum breytingum fylgir Ísland í fótspor nágrannalanda sem hafa stigið sambærileg skref. Í Bretlandi tók sambærileg breyting gildi árið 2021, í Danmörku árið 2024 og í Svíþjóð í lok síðasta árs.
Staðan ekki betri það sem af er öldinni
Í annan stað var tilkynnt, með tölvupósti frá Landspítala til heilbrigðisráðuneytis, að staðan á spítalanum varðandi sjúklinga með færni og heilsumat, eða þá sjúklinga sem bíða eftir að komast í hjúkrunarrými, hafi ekki verið betri það sem af er þessari öld.
Alma segir að ríkisstjórnin hafi einsett sér að leiða þjóðarátak í umönnun eldra fólks, meðal annars með fjölgun hjúkrunarrýma og eflingu heimahjúkrunar og unnið markvisst að því að hraða uppbyggingu rýma og skapa úrræði fyrir aldraða sem ekki hafa getað útskrifast af Landspítala.
„Nú sjáum við árangurinn sem er gríðarlega mikilvægur, bæði fyrir þá einstaklinga sem í hlut eiga og fyrir alla starfsemi spítalans. Að tryggja öldruðum viðeigandi þjónustu og öryggi eftir sjúkrahúslegu er eilífðarverkefni sem við munum áfram leggja mikla áherslu á,“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.
Þó að reynslan sýni að góð staða sem þessi geti breyst snöggt til hins verra er ljóst að þau 244 rými fyrir aldraða sem opnuð hafa verið undanfarna 12 mánuði, auk 48 nýrra rýma á Vífilsstöðum, hafa breytt miklu fyrir hinn margumtalaða fráflæðisvanda Landspítala.
Áfram verður bætt í, en fyrirhugað að opna 154 ný hjúkrunarrými árið 2027 og 251 árið 2028.
