Golfmót jafnaðarfólks var haldið þann 19. ágúst í hreint ótrúlegu blíðskaparveðri. Leikið var hjá Golfklúbbnum Dalbúa í Miðdal við Laugarvatn og þátttaka góð, en fyrirkomulagið var 18 holu punktakeppni með hámarksforgjöf 36.
Nokkuð er frá því að Samfylkingin stóð síðast fyrir golfmóti fyrir félaga, en kominn var tími á að endurvekja golfmótið innan flokksins og sýnir góð skráning mikinn áhuga, en skamma stund tók að fylla mótið.
Góð tilþrif litu dagsins ljós og það sem meira er, þá skemmtu þátttakendur sér virkilega vel. Sérmerktir Samfylkingar-golfboltar voru framleiddir og seldir í tilefni mótsins og eitt er víst – þeir skiluðu sér ekki allir heim.
Eftir 18 holur af prýðisgolfi var það Kristján Þórður Snæbjarnarson sem stóð uppi sem sigurvegari í karlaflokki og Sigrún Þorvarðsdóttir. Þess má geta að Kristján Þórður þekkir vel til á svæðinu enda er Golfvöllurinn Dalbúi á landi Rafiðnaðarsambandsins, sem Kristján leiddi áður en hann tók sæti á Alþingi.
Í öðru sæti í karlaflokknum var Guðmundur Jónsson og í þriðja sæti var Hákon Gunnarsson. Kvennamegin var Nanna Kaaber Árnadóttir í öðru sæti og Ragna Sigurðardóttir í því þriðja. Öll voru þau leyst út með góðum vinningum fyrir árangurinn.

Það voru fleiri verðlaun veitt, meðal annars fyrir lengstu teighögg og mestu nálægð við holu á tveimur par 3 brautum, auk fjölda útdráttarverðlauna. Þá voru einnig veitt verðlaun fyrir höggleik. Þar varð Árni Steinn Viggósson hlutskarpastur karlamegin og Sigrún Þorvarðsdóttir í kvennaflokki.
Að leik loknum snæddu spilarar saman stórgóða kjúklingasúpu, ræddu um yfirburði jafnaðarstefnunnar og nutu sólarinnar.
Mótið var einkar vel heppnað og er stjórn Golffélags jafnaðarmanna þakkað fyrir sín störf við skipulagninguna, en hana skipa þau Guðmundur Ari, Lilja Hrönn, Sigmundur Ernir og Kristján Þórður.





