Samfylkingin á fylgissiglingu síðsumars

Samkvæmt nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup, sem gildir fyrir júlímánuð, er Samfylkingin stærsti flokkur landsins með 27,9 prósent fylgi. Marktækur munur er á henni og Sjálfstæðisflokki sem er næststærstur með 25,4 prósent. Samfylkingin hefur bætt við sig mestu fylgi frá síðustu kosningum (7,1 prósentustig) og bætir við sig mestu fylgi milli mánaða (1,7 prósentustig).

Fylgi Miðflokksins heldur áfram að dala og mælist nú 14,6 prósent. Það er minnsta fylgi sem flokkurinn hefur mælst með í næstum eitt ár, eða síðan í september í fyrra. Mest var fylgi hans í lok árs 2025 þegar það mældist 21,7 prósent. Flokkurinn hefur því tapað 7,1 prósentustigi á þeim tíma. Athyglisvert er að Miðflokkurinn er núna að taka meira kjörfylgi af bæði Flokki fólksins og Framsókn en Sjálfstæðisflokki. Flóttinn úr Sjálfstæðisflokknum þangað yfir virðist því vera að ganga nánast að öllu leyti til baka og Miðflokkurinn er nú einungis 2,5 prósentustigum yfir kjörfylgi.

Það sem af er ári hefur Sjálfstæðisflokkurinn bætt við sig 8,5 prósentustigum og Framsókn 0,6 prósentustigum. Stjórnarandstaðan hefur því samanlagt bætt við sig tveimur prósentustigum á yfirstandandi ári.

Stuðningur við ríkisstjórnina mælist enn yfir 50 prósent og Gallup reiknast til að hún sé með 31 þingmann samanlagt, þar af sé Samfylkingin með 20.

Samfylkingin mældist stærst í öllum aldurshópum nema 50–59 ára og í öllum kjördæmum nema Kraganum (þar sem munar einungis 0,4 prósentustigum á Samfylkingu og Sjálfstæðisflokknum) og Suðurkjördæmi, þar sem Samfylkingin er næststærst.

Sjálfstæðisflokkurinn er með aðeins meira fylgi hjá þeim sem eru með grunnskólamenntun sem æðstu menntun en Samfylkingin með mest fylgi í öðrum menntunarhópum. Sérkennilegt mynstur er í fylgi eftir tekjuhópum þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur í tveimur: hjá þeim sem eru með allra lægstu tekjurnar (undir 400 þúsund krónum) og þeim sem eru með tekjur á bilinu 1,25-1,5 milljónir króna á mánuði. Í hinum fjórum tekjuhópunum mælist Samfylkingin með mest fylgi.

Þau 9,3 prósent atkvæða sem sett voru á flokka en falla niður dauð samkvæmt þessari könnun deilast á Vinstri græn, Sósíalistaflokkinn og Pírata. Það eru þeir þrír flokkar sem Samfylkingin hefur tekið mest af það sem af er kjörtímabili enda allt flokkar sem byggja á félagshyggju og hafa unnið með Samfylkingu nýlega í meirihluta í Reykjavík. Engin hægriatkvæði falla niður dauð miðað við þessa könnun.

Ef horft er á fylgi Samfylkingarinnar síðustu vikuna sem könnuð var, þar sem svarendur voru 872, þá kemur í ljós að fylgi flokksins mældist 30 prósent í henni. Það er í fyrsta sinn síðan snemma í maí sem flokkurinn nær yfir það mark. Að sama skapi mældist Sjálfstæðisflokkurinn þá 25,3 prósent, Miðflokkurinn með 13,5 prósent og Framsókn mælist rétt inni með 5,1 prósent fylgi. Samanlagt fylgi stjórnarandstöðuflokkanna mældist 43,9 prósent í þeirri viku. Samanlagt fylgi stjórnarflokkanna mældist hins vegar meira, eða 46,7 prósent og þeir allir inni með meirihluta þingmanna.

Vinstri græn, Sósíalistar og Píratar mælast áfram allir úti með samanlagt með 8,9 prósent fylgi.

,