Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hóf í sumar útgáfu fréttabréfs, þar sem hann skrifar um pólitík, orkumál, náttúruvernd og önnur hugðarefni sín.
Fréttabréfið má nálgast á Substack, á vefslóðinni johannpall.substack.com. Bæði er hægt að lesa skrif Jóhanns Páls þar og skrá sig fyrir fréttabréfinu, þannig að nýir pistlar ráðherrans berist beint í þitt pósthólf.
Á síðustu vikum hefur Jóhann Páll meðal annars skrifað um það hvernig hert löggjöf um vindorku er þegar byrjuð að hafa áhrif á umdeild verkefni, sem þurfa nú að fá umfjöllun í rammaáætlun og fá samþykki Alþingis.
Einnig hefur hann fjallað um það af hverju honum snerist hugur í Evrópumálum – og það hvernig hann álítur það fullveldismál að segja Já við aðildarviðræðum að Evrópusambandinu, þann 29. ágúst.
