Málefnahópur Samfylkingarinnar um stjórnarfar og mannréttindi boðar til opins félagsfundar um nýsamþykkt lög um brottfararstöð og afstöðu Samfylkingarinnar til þeirra.
Þar mun Víðir Reynisson, þingmaður Samfylkingar og formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, fara yfir efni frumvarpsins sem varð að lögum fyrir skemmstu, og meðferð málsins á Alþingi.
Fundurinn fer fram í húsnæði Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, Strandgötu 43, miðvikudaginn 24. júní kl. 20:00. Markmið fundarins er að skapa vettvang fyrir upplýsingar, samtal og skoðanaskipti meðal félagsfólks í Samfylkingunni um þetta mál.
