Tímamótasamningur undirritaður við Ljósið

Alma D.  Möller heilbrigðisráðherra og Sigurður Helgason forstjóri Sjúkratrygginga skrifuðu í vikunni undir langtímasamning við Ljósið um þverfaglega og heildræna endurhæfingu einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein.

Samningurinn er til fjögurra ára og nemur fjárhagsrammi hans 487 milljónum á ári sem er ríflega tvöföldun frá fyrri samning. Samningurinn veitir Ljósinu aukinn fyrirsjáanleika og festir í sessi þá mikilvægu þjónustu sem byggð hefur verið upp í Ljósinu undanfarin 20 ár. 

Samningurinn tekur mið af aukningu í krabbameinsgreiningum samkvæmt spá Krabbameinsfélags Íslands um þróun nýgengis krabbameina á komandi ára. Þá er lögð sérstök áhersla á að efla aðgengi einstaklinga á landsbyggðinni að sérhæfðri endurhæfingarþjónustu, meðal annars með aukinni fjarþjónustu og fræðslu til heilbrigðisstarfsfólks í heimabyggð.

Þetta er stór áfangi og þingmaður Samfylkingar, Eydís Ásbjörnsdóttir, fagnaði honum í ræðu í undir liðnum störf þingsins á miðvikudag. Eydís fagnaði ákvörðun ríkisstjórnarinnar og því frumkvæði sem Alma heilbrigðisráðherra hefur sýnt í málinu.

„Endurhæfing er nauðsynlegur hluti af góðri heilbrigðisþjónustu og með þessum samningi er tryggt að Ljósið geti áfram verið sá styrkur og stuðningur sem svo margir hafa reitt sig á í bataferlinu og hjálpað fólki að ná aftur betri lífsgæðum,“ sagði Eydís.

Hún sagði einnig að ef litið væri til til sögu fjármögnunar Ljóssins sæist vel hvers vegna þessi samningur skiptir máli, en frá fyrstu árum starfseminnar hefur Ljósið starfað á grundvelli ólíkra samninga við opinbera aðila. 

„Árið 2020 var í fyrsta sinn gerður þriggja ára þjónustusamningur við Ljósið að fjárhæð 220 milljóna króna. Á sama tíma fjölgaði þjónustuþegum verulega og umfang starfseminnar jókst ár frá ári. Þrátt fyrir þann vöxt fylgdi fjármögnunin ekki þeirri raunverulegu þörf sem myndaðist í starfsemi Ljóssins. Ljósið þurfti ítrekað að leita eftir tímabundnum viðbótarfjárveitingum frá fjárlaganefnd til að mæta aukinni eftirspurn eftir þjónustu þess. Það skapaði óvissu fyrir starfsemina og þá einstaklinga sem á þjónustunni þurfa að halda. Það er því sérstaklega ánægjulegt að framlag til Ljóssins hefur nú verið aukið varanlega og nemur nú 487 milljónum króna, sem er ríflega tvöföldun frá árinu 2020. Nýr langtímasamningur byggir á þeim grunni og veitir starfseminni þann stöðugleika sem hún hefur lengi kallað eftir,“ sagði Eydís.

,

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading