Logi Einarsson ráðherra fjölmiðlamála var eldsnöggur að svara skriflegri fyrirspurn sem barst á dögunum frá varaþingmanni Miðflokksins, Heiðbrá Ólafsdóttur. Fyrirspurnin laut að því hvort ráðherrann hefði „skoðað hvort birting RÚV á myndefni sem fengið er með ólögmætum hætti, t.d. með innbroti í húsnæði, samræmist þeim lagalegu og siðferðilegu kröfum sem gerðar eru til RÚV“.
Svar ráðherranns var nokkuð einfalt: „Ríkisútvarpið er sjálfstætt og óháð í störfum sínum og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hefur ekki afskipti af fréttum eða annarri dagskrárgerð Ríkisútvarpsins. Það fyrirkomulag byggist á sjónarmiðum um ritstjórnarlegt sjálfstæði og „armslengd“ á milli stjórnvalda og fjölmiðla, vegna þess mikilvæga lýðræðis- og aðhaldshlutverks sem fjölmiðlar gegna gagnvart stjórnvöldum og atvinnulífi.“
Það er mikilvægt að Logi og ráðuneyti hans haldi þessu skýrt til haga, enda er ritstjórnarlegt sjálfstæði ríkisfjölmiðilsins grundvallaratriði. Ef ráðamenn ætluðu að fara að vera með puttana í því hvaða efni mætti birta eða ekki birta í fréttum eða öðru dagskrárefni RÚV væri fjölmiðlafrelsi í landinu sannarlega ekki á góðum stað. Þess utan þá eru mörg dæmi um að mikilvægar fréttaumfjallanir, sem upplýsa almenning, séu byggðar á gögnum, t.d. myndefni, sem kann að hafa verið aflað með vafasömum hætti og síðar komið til fjölmiðla. Í því samhengi má nefna Panama-skjölin, gagnasafn í eigu lögfræðistofu sem uppljóstrari kom til fjölmiðla.
Hefði ráðherra þess tíma átt að hlutast til um það að RÚV héldi þeim gögnum frá íslenskum almenningi? Fjallaði ekki um þau af því að gögnin væru sennilega fengin með ólögmætum hætti? Auðvitað ekki.
Með nálgunum eins og þeirri sem viðruð er í fyrirspurn varaþingmannsins hafa ríkisfjölmiðlar sumstaðar verið vængstýfðir, sviptir frelsi sínu og sjálfstæði. Það er því gott að ráðherrann og ráðuneyti fjölmiðlamála bregðist hratt við fyrirspurn af þessu tagi.
Í svari Loga kemur einnig fram að „starfsemi Ríkisútvarpsins, sem og annarra ríkisaðila sem undir ráðuneytið heyra, fari fram í samræmi við gildandi lög og reglur“ og að það sé „hlutverk stjórnvalda að tryggja að lagaumgjörð um fjölmiðla miði að því að tryggja tjáningarfrelsi og ritstjórnarlegt sjálfstæði fjölmiðla; að fjölmiðlar og fréttafólk geti sinnt lýðræðislegu hlutverki sínu án afskipta ríkisins, eigenda eða auglýsenda fjölmiðla.“
„Stjórn Ríkisútvarpsins ber ábyrgð á rekstri Ríkisútvarpsins og að farið sé að lögum um Ríkisútvarpið. Í því felst m.a. að móta í samvinnu við útvarpsstjóra dagskrárstefnu og megináherslur í starfi Ríkisútvarpsins til lengri tíma og að fylgjast með starfsemi og verkefnum Ríkisútvarpsins,“ segir einnig í svari Loga Einarssonar.
