Matsferillinn veitir betri innsýn í stöðu barnanna

Guðmundur Ari Sigurjónsson þingmaður Samfylkingar gerði hinn nýja matsferil í grunnskólum landsins að umtalsefni í ræðu undir liðnum störf þingsins á miðvikudag. Sagði hann upplýsingarnar sem þar koma fram hafa veitt honum betri innsýn en hann hefur áður haft, í nám barna sinna.

„Þegar ég sat hér eitt kvöldið í vikunni í hliðarsal Alþingis og hlustaði á áhugaverðar umræður þá kíkti ég í símann minn á Ísland.is og sá að þar birtist námsmat barnanna minna,“ sagði Guðmundur Ari, sem á þrjú grunnskólabörn, þar af eitt í 4. bekk og annað í 7. bekk.

„Við samþykktum lög um matsferil fyrir um ári síðan og þarna birtust niðurstöður barnanna minna í stærðfræði og íslensku, annars vegar hvernig þau stóðu sig á þessu samræmda prófi og hins vegar hvernig þau standa sig á móti öllum nemendum í sama árgangi á landsvísu. […] Ég hef aldrei á þeim sjö árum sem ég hef verið með börn í grunnskóla haft jafn góða innsýn í stöðu náms, hvar börnin mín standa námslega, og eftir að ég sá þessa niðurstöðu,“ sagði Guðmundur Ari.

„Það stendur meira að segja á blaðinu í einum matsþætti að hér þurfi umræddur nemandi viðbótarstuðning og þarna ætlum við foreldrarnir að stíga inn og vinna með barninu okkar, vinna með skólanum, hann á að stíga upp í þessum matsþætti. Þetta er algjört grunnatriði til að geta stutt við börnin sín til að þau nái árangri í grunnskóla. Mér finnst í raun magnað að við höfum verið að samþykkja þessi lög í fyrsta sinn á síðasta ári og ég fagna því mjög,“ sagði hann.

Guðmundur Ari sagði þetta ekki einungis byltingu fyrir foreldra og nemendur, heldur nýttist þetta líka skólunum, sveitarfélögum og stjórnvöldum, til að setja alvöru menntastefnu og ákveða hvernig eigi að styðja við skólana okkar og nemendur þeirra.

„Þetta er líka undirstaðan fyrir nýja atvinnustefnu Íslands. Við ætlum að leggja meiri áherslu á háframleiðnistörf þar sem við þurfum öfluga námsmenn, öfluga einstaklinga, sem skapa verðmæti fyrir íslenskt samfélag, verðmæti sem byggja undir velferðina hér á landi. Hér erum við að leggja algjöran grunn fyrir hagsæld Íslands til framtíðar,“ sagði Guðmundur Ari einnig, í ræðunni, sem sjá má hér að neðan.

,

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading