Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingar ræddi um auðlindir Íslands í tengslum við aðildarviðræður við Evrópusambandið undir liðnum störf þingsins á miðvikudag. Hann rifjaði upp að á mánudagskvöld hafði hann haft orð á því í Silfrinu að hann „hefði ekki fundið þess nein dæmi að lönd hefðu látið auðlindir af hendi í aðildarsamningum við ESB“ og bætti svo við að hann hefði getað tekið dýpra í árinni.
Svo vitnaði Dagur beint í Margréti Einarsdóttur, einn helsta Evrópuréttarsérfræðing landsins, sem ræddi um nákvæmlega þetta í viðtali við hlaðvarpið Meginlandið á dögunum og sagði:
„Mér hefur einmitt fundist aðeins sérstakt í umræðunni í rauninni bæði hjá stjórnvöldum og stjórnarandstæðingum að þeir hafa verið að tala um að við þyrftum að tryggja yfirráð yfir auðlindum okkar í aðildarviðræðum. En það er nú bara þannig að aðildarríki ESB eiga sjálf vatns- og orkuauðlindir sínar. Löggjöf ESB fjallar ekkert um eignarhald á auðlindum eða nýtingu auðlindanna. Auðlindin sjálf er bara í eigu aðildarríkja ESB og líka arðsemin af þeim. Hins vegar setur Evrópusambandið margs konar löggjöf um hvernig undirbúningi fyrir nýtingu auðlinda, t.d. lög um mat á umhverfisáhrifum sem við þekkjum hér á landi. Það er löggjöf sem kemur frá ESB og við erum búin að taka upp í EES-samninginn.“
Dagur nefndi svo að í máli Margrétar hefði jafnframt komið fram að ESB væri vissulega einnig með margs konar löggjöf sem snýr að því að koma á innri markaði með raforku og löggjöf til að tryggja meiri orkunýtingu og orkuöryggi og fleira. Það væri hins vegar bara ekki rétt að það þýddi að auðlindir færðust á einhvern hátt í eigu ESB.
Auðlindabaráttan innanlands
„Hér væri hægt að setja punkt eða einfaldlega endurtaka þetta, en þá værum við að skauta yfir að það stendur yfir raunveruleg barátta um auðlindir, ekki við ESB eða erlend ríki, heldur barátta fyrir hönd þjóðarinnar um að tryggja í stjórnarskrá þjóðareign á auðlindum og það eru sterk öfl líka í þessum þingsal sem berjast gegn því, þvælast fyrir breytingu á stjórnarskrá sem myndi tryggja ævarandi eign og arð þjóðarinnar af auðlindinni. Þetta er barátta gegn sérhagsmunum, fyrir þjóðarhagsmunum,“ sagði Dagur, í niðurlagi ræðu sinnar.
Heyra má hlaðvarpið sem hann vísaði í hér að neðan:
