Hvað sagði okkar fólk í atkvæðagreiðslunni?

Atkvæðagreiðsla um þjóðaratkvæðagreiðslutillöguna í þinginu í gær tók nokkrar klukkustundir, ekki síst þar sem þingmönnum stjórnarandstöðunnar lá mikið á hjarta og létu sér ekki nægja að láta formenn, þingflokksformenn eða nefndarmenn í utanríkismálanefnd fara yfir málið, heldu tóku mjög margir þingmenn til máls bæði um atkvæðagreiðsluna og svo einnig í atkvæðaskýringum um breytingartillögur og tillöguna í heild sinni.

Hér er sumt það helsta sem okkar fólk sagði í sínum ræðum:

Guðmundur Ari Sigurjónsson:  „Samfylkingin styður þetta mál því að við treystum þjóðinni. Samfylkingin styður þetta mál því að við teljum rétt að kanna þau tækifæri sem felast í aðild að Evrópusambandinu, í bættri samkeppni og upptöku á stærri og öflugri gjaldmiðli. Samfylkingin styður þetta mál því að á óvissutímum í alþjóðamálum teljum við ábyrgt að fjölga möguleikum og auka samstarf við líkt þenkjandi þjóðir. En síðast en ekki síst þá styðjum við þetta mál því að við teljum rétt að þjóðin eigi fyrsta og síðasta orðið þegar kemur að svo stóru hagsmunamáli fyrir Ísland.“

Kristrún Frostadóttir:  „Í þessum kosningum er verið að kjósa um tækifæri. Það er verið að kjósa um það hvort fólk vill fjölga valkostum, sjá hvað gæti falist í aðild, endanlegur samningur verður ætíð borin undir þjóðina og ef ríkisstjórnin fær umboð í haust þá treystum við okkur til að sinna þessu verkefni vel. Ég átta mig á því að það eru tilfinningar í tengslum við þetta mál. Það er eðlilegt. Öll viljum við það besta fyrir Ísland en ég vel að sjá hvar tækifærin geta falist.“

Dagbjört Hákonardóttir:  „Ég segi já við þessari tillögu. Ég geri það af miklu þjóðarstolti. Ég vil þakka hæstvirtri utanríkismálanefnd fyrir samvinnuna í málinu, öllum í nefndinni. Þótt okkur greini á um það hvar framtíð Íslands sé best borgið er það í lok dags íslensku þjóðarinnar að ákveða það samkvæmt þessu uppleggi. Ég vil líka þakka sérstaklega formanni nefndarinnar, Pawel Bartoszek, fyrir mikla og góða vinnu. Um þetta vil ég segja að ég held að við séum ekki svo ósammála um það hvað Íslandi er fyrir bestu í auðlindamálum, um það að standa vörð um fiskimiðin okkar, um búfjárstofna, um íslenskan landbúnað — ég held að við séum hins vegar að einhverju leyti ósammála um það hvort það sé raunhæft að ná þessum markmiðum. Við skulum láta á það reyna. Við skulum fara út og gera ýtrustu kröfur ef þjóðin leyfir.“

Víðir Reynisson:  „29. ágúst gefst tækifæri til þess að ganga til samninga um framtíðina og þegar slíkur samningur liggur fyrir geta allir tekið ákvörðun um það hvort sá samningur sé góður fyrir framtíðina fyrir alla, fyrir okkur, fyrir börnin okkar, fyrir barnabörnin og ég segi já fyrir framtíðina, bæði núna og í haust.“

Ragna Sigurðardóttir:  „Þetta er söguleg stund og ég segi já við því að færa þessa ákvörðun héðan og í hendur almennings.“

Dagur B. Eggertsson:  „Það er með stolti, ánægju og sannfæringu sem ég segi já í þessari atkvæðagreiðslu. Ég held að þjóðin skiptist í alla vega þrjá hópa. Sumir hafa hjartans sannfæringu fyrir því að segja nei. Aðrir hafa hjartans sannfæringu fyrir því að segja já og svo er einhver hópur, hann er kannski stærstur, hann er alla vega umtalsverður, sem er ekki alveg viss en er opinn fyrir því að hlusta og velta málinu fyrir sér. Á þessum hópi hafa dunið að hluta til misvísandi skilaboð um hvað geti falist í endanlegum samningi. Það er svo mikilvægt að átta sig á því að það endanlega svar getur í sumum tilvikum ráðist af því að benda á hvað er satt og rétt en í öðrum tilvikum getur það oltið á niðurstöðu samninganna sjálfra.“

Í ræðu um atkvæðagreiðsluna sagði Dagur einnig: „Ég veit að það eru margir sem eru efins en ég minni þá á laglínuna: Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski. Látum á þetta reyna, höldum dyrunum opnum.“

Jóhann Páll Jóhannsson:  „Það eru kostir og gallar en það er engin leið að vega og meta tækifærin og áskoranirnar bera saman núverandi ástand miðað við það sem hugsanlega yrði með Evrópusambandsaðild nema með því að hefja viðræður við Evrópusambandið. Þetta er mín afstaða. Þess vegna styð ég þetta eindregið.“

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading