Vikan á Alþingi var undirlögð umræðu um tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu í þinginu. Henni lauk á fimmtudag og fyrir liggur að þjóðin fær að segja sitt um það hvort Ísland hefji á ný viðræður um aðild að Evrópusambandinu þann 29. ágúst. Auðvitað segjum við já þar og löndum góðum samningi fyrir Ísland – sem þjóðin fær lokaorðið um.
Miðflokkurinn teygði á umræðunni eins og honum einum er lagið og beitir þeirri aðferð að tortryggja allt, þyrla upp ryki og saka fólk um leyndarhyggju og samsæri gegn þjóðinni.
Kannski væri ágætt ef þau héldu bara áfram í sama takti inn í sumarið, því eins og Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður utan flokka, sagði í gær gæti yfirdrifinn málflutningur þeirra dregið fólk að því að segja já í lok ágúst.
„Eftir að hafa hlustað á umræður hér í þingsal þá verð ég nú eiginlega bara að þakka stjórnarandstöðunni og þá sérstaklega Miðflokknum fyrir það að ég er alveg ákveðinn í að segja já 29. ágúst,“ sagði Guðmundur Ingi í ræðu sinni í þinginu í gær.
