Hlaðvarpið: „Ég held að Hildi Björnsdóttur langi ekki í meirihluta með Miðflokknum“

Starfsfólk þingflokks Samfylkingar stökk inn í Kratakompuna þessa vikuna til að fara yfir breiðu línurnar í afstöðnum sveitarstjórnarkosningum, sem heilt yfir styrktu stöðu Samfylkingar á sveitarstjórnarstiginu.

Flokkurinn er nú með næst mest fylgi á landsvísu af stjórnmálaflokkum landsins og hefur einungis einu sinni áður verið með fleiri kjörna fulltrúa á sveitarstjórnarstiginu.

Kjörnum fulltrúum S-lista fjölgar um 12 á milli kosninga og eru þeir nú 38, ef við leyfum okkur að telja tvo kjörna fulltrúa Samfylkingar og Viðreisnar og óháðra á Seltjarnarnesi með. Við mælum með vef Metils fyrir ítarlega greiningu á niðurstöðu kosninganna.

Í þættinum förum við annars yfir það sem helsta sem blasir við eftir kosningar, stórsigra Samfylkingar á Skagaströnd og í Suðurnesjabæ og uppbyggingu flokksins um allt land, hvort Samfylkingu hafi mistekist að mæta áróðri andstæðinga okkar um hvað allt sé ömurlegt í Reykjavík, hrun Framsóknar og Pírata í borginni og svo möguleika á meirihlutamyndun í Reykjavík.

Hildi Björnsdóttur hlýtur að langa meira að verða vinsæll og farsæll borgarstjóri en svo að hún leiði Miðflokkinn til valda og valdefla þar með nafnlausa fjarhægrið inni á gamla Twitter. Eða hvað?

,

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading