Samfylkingin tryggir uppbyggingu fyrir alla

Pétur H. Marteinsson skrifar:

Hægrimenn virðast stundum gera ráð fyrir því að allir séu eins og hafi sömu þarfir. Takist þeim svo ekki að uppfylla þær þarfir sé það einfaldlega viðkomandi að kenna. Sá hinn sami þurfi bara að rífa sig í gang og gera betur.

Samfélagsgerðin er hins vegar flóknari en þetta. Aðstæður, áföll eða hreinlega tilviljanir geta ráðið því að fólk standi hallari fæti en það ætlaði sér nokkru sinni, tímabundið eða til langframa. Samfélagið verður að grípa það fólk, veita því leiðir til að lifa með mannvirðingu og tækifæri til að byggja sig aftur upp.

Þetta eigum við að gera saman – og af því eigum við að vera stolt.

Ein slík leið er að bjóða sem allra flestum upp á mannsæmandi húsnæði. Það gerir Reykjavík, undir forystu jafnaðarfólks, með því að eiga öflugasta félagslega leigufélag landsins, Félagsbústaði. Það félag á yfir þrjú þúsund íbúðir af ýmsum toga – sem þýðir að meira en þrjár af hverjum fjórum félagslegum íbúðum sem er að finna á höfuðborgarsvæðinu eru í höfuðborginni.

Önnur mikilvæg leið er að byggja upp svokallaðar almennar íbúðir. Áratugur er síðan lög um þær voru samþykkt á Alþingi í tilraun til að endurreisa einhvern vísi að félagslega húsnæðiskerfinu sem var aflagt undir lok síðustu aldar af Sjálfstæðis- og Framsóknarflokki með þeim afleiðingum að félagslegum íbúðum fækkaði um helming milli áranna 1998 og 2017.

Íbúðirnar sem hafa fengið stofnframlög eru ætlaðar fyrir alls kyns hópa, til dæmis fólk sem er undir skilgreindum tekju- og eignaviðmiðum. Félögin sem hafa byggt upp kerfið af mikilli festu eru óhagnaðardrifin, leiga er mun lægri en á almennum markaði og ánægja þeirra sem búa í íbúðum er mun meiri en hjá þeim sem leigja af öðrum.

Hægrið er með óþol fyrir félagslegu húsnæði

Félagslegt húsnæði er þyrnir í augum íslenskra hægriflokka. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík, og á landsvísu, vill til að mynda leggja félagslega íbúðakerfið niður í þeirri mynd sem það er til í dag.

Í stjórnmálaályktun flokksráðsfundar flokksins frá því fyrr á þessu ári kemur skýrt fram að Sjálfstæðisflokkurinn vilji selja leigjendum í bæði almenna íbúðakerfinu og þeim sem búa í íbúðum Félagsbústaða eignirnar sem þeir búa í. Þessar áherslur endurspeglast á verkefnalista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi kosningar.

Þetta er sambærilegt og gert var um síðustu aldamót með vondum afleiðingum fyrir húsnæðisöryggi viðkvæmra hópa.

Stór Samfylking er besta sóknin og besta vörnin

Það er afar mikilvægt fyrir íslenskt samfélag að félagslega íbúðakerfið verði ekki rifið niður aftur. Besta leiðin til að tryggja það er sterk Samfylking í broddi fylkingar í Reykjavík.

Okkar markmið er að tryggja að húsnæði borgarinnar taki mið af þörfum fólks, ekki hugmyndafræðilegum kreddum. Það sýnum við í verki með mikilli uppbyggingu á félagslegu og óhagnaðardrifnu húsnæði, sem hefur orðið í höfuðborginni undir okkar stjórn.

Það sýnir landsstjórnin, undir forystu Samfylkingarinnar, í verki með þeim fjölþættu aðgerðum sem hún hefur innleitt á skömmum tíma til að draga úr braski með íbúðir og skilgreina þær frekar sem heimili, ekki fjárfestingarvörur.

Það hafa ríki og borg svo gert saman, undir forystu Samfylkingarinnar, í nýjum húsnæðispakka. Samkvæmt honum á að byggja allt að 1.400 nýjar íbúðir á lóðum ríkisins í Reykjavík á næstu árum samhliða því að húsnæði í eigu þess verður breytt í íbúðir.

Áhersla verður lögð á að vinna verkefnið í sátt við íbúa og umhverfið, byggja minni íbúðir sem mest eftirspurn er eftir. Á bilinu 20-30% þeirra verða almennar íbúðir, íbúðir sem uppfylla skilyrði hlutdeildarlána, aðrar leiguíbúðir (til dæmis stúdentaíbúðir, leiguíbúðir Félagsbústaða og íbúðir fyrir eldra fólk) og búseturéttaríbúðir.

Valið er einfalt. Viljum við samfélag sem ber ábyrgð hvert á öðru undir öruggri stjórn Samfylkingarinnar eða viljum við mylja félagslega öryggisnetið okkar í sundur?

Um það verður kosið 16. maí næstkomandi.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 7. maí

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading