Eydís Ásbjörnsdóttir þingmaður Samfylkingarinnar fékk vægast sagt áhugavert svar við fyrirspurn sinni til atvinnuvegaráðherra á dögunum, er varðar meðalverð á landaðri loðnu til frystingar. Samkvæmt svarinu sem Eydís fékk frá ráðherra er meðalverð á loðnu til frystingar á Íslandi um 81 kr. á kíló, en um 250 kr. á kíló í Færeyjum.
Eydís gerði þetta að umtalsefni í ræðu undir liðnum störf þingsins í síðustu viku og sagði að þetta vekti verulegar áhyggjur. „Þá liggur það fyrir svart á hvítu að loðna sem er landað í Færeyjum er rúmlega þrisvar sinnum verðmætari en loðna sem er landað á Íslandi og skiptir engu þó svo að þar sé um sömu loðnutorfu að ræða. Þetta er gríðarlegur munur sem þarfnast útskýringa,“ sagði Eydís.
Hún sagði að þarna vantaði „milljarða inn í kerfið“ og benti á að sveitarfélög sem byggja afkomu sína á sjávarútvegi yrðu af tekjum. „Lægra uppgefið aflaverð þýðir minni tekjur til hafnarsjóða og lægri útsvarstekjur. Þessi munur getur ráðið úrslitum um fjárfestingar í innviðum og þjónustu,“ sagði hún og benti á að staða sjómanna væri ekki síður alvarleg.
„Laun þeirra byggjast á hlutdeild í verðmæti aflans. Þegar verðið er svona lágt skerðist þeirra hlutur með beinum hætti. Hér er um að ræða verulega skerðingu á tekjum fólks sem sækir auðlindina. Þetta kallar á spurningar sem við verðum að svara. Er verið að hámarka verðmæti auðlindarinnar? Er skipting hennar sanngjörn og ef ekki, hvað ætlum við að gera í því?“ sagði Eydís Ásbjörnsdóttir.
