Hlaðvarp: Það er eins og allir flokkar séu jafnaðarflokkar í sveitarstjórnarkosningum

Í hlaðvarpsþætti vikunnar mættu þær Hildur Rós Guðbjargardóttir sem er í 2. sæti á lista í Hafnarfirði og Vilborg Anna Strange Garðarsdóttir sem er í 2. sæti á listanum í Garðabæ, í Kratakompuna til Arnars og Vals.

Þær fóru yfir stöðuna hjá framboðunum og hvað hefur verið á oddinum síðustu vikur. Rætt var um sund og meira sund fyrir unga sem aldna og af hverju í ósköpunum þær þurfi að fara í kvöldsund í Reykjavík. Grunnskólamálin voru líka tekin rækilega fyrir og mikilvægi úrbóta í þeim málaflokki.

Þær stöllur voru spurðar um afstöðu sína til sameiningar Hafnarfjarðar og Garðabæjar sem og samstarfsverkefni ýmis á milli sveitarfélaganna. Hildur Rós lét gamminn geisa um næturstrætó, sem Hafnfirðingar vildu en Garðbæingar ekki, og mikilvægi þess að samgöngumál séu unnin í góðu samstarfi.

Einnig ræddum við af hverju í ósköpunum allir flokkar láti eins og jafnaðarflokkar í kosningum en standi svo ekki við stóru orðin (lesist Framsóknarflokkurinn sérstaklega).

Þá fór Vilborg Anna yfir stöðuna á Álftanesi og hvernig Sjálfstæðisflokkurinn hefur vanrækt það mikilvæga svæði. Að lokum vaknaði spurningin: Hvað kemst maður langt á einu skópari? Kosningabarátta er frábært tækifæri til að láta reyna á það.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading