Hildur sem vildi breyta sveit í borg vill nú breyta borg í malbik

Árið 2021 setti hópur hægrisinnaðra öldunga saman vettvanginn „Áhugafólk um samgöngur fyrir alla“. Að honum stóðu sömu einstaklingar og standa nú að samtökunum „Samgöngur fyrir alla“. Þar fara fremstir í stafni Þórarinn Hjaltason, Ragnar Árnason og Elías B. Elíasson. Meginmarkmið þessa hóps er að vinna gegn Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, koma í veg fyrir að Borgarlína verði að veruleika og auka rými fyrir bíla á svæðinu.

Eftir að hópurinn steig fyrst fram þarna fyrir rúmum fimm árum birti röggsamur oddviti í Reykjavík prýðilega grein í Morgunblaðinu. Í greininni fjallaði viðkomandi á gagnrýninn hátt um ofangreindar áherslur og sagði þær minna „eilítið á áratuga tímaflakk“. Í umræddri grein sagði orðrétt: „Telur hópurinn hið 60 ára gamla hraðbrautaskipulag höfuðborgarsvæðisins hafa staðist allar væntingar en hefði viljað sjá áður áformaða hraðbraut gegnum Fossvogsdalinn. Þá telur hópurinn ekki æskilegt að færa bílaumferð neðanjarðar. Breiðari akvegir og fjöldi mislægra gatnamóta verði betri kostur.

Hópurinn leggst jafnframt gegn áformum um Borgarlínu en kynnir til sögunnar svokallaða Borgarlínu Lite – metnaðarlausa útgáfu af hinu fyrirhugaða hágæða almenningssamgöngukerfi. Borgarlínu lite tilheyra færri sérakreinar, lengri biðtími og verri þjónusta. Hún er hvorki byltingarkennd né nýstárleg hugmynd. Hún hefur áður verið fullrannsökuð og þótti ekki standast gæðakröfur.

Tillögur hópsins taka aðeins mið af þörfum þeirra sem vilja ferðast með bíl. Þær taka mið af þeirri bílaborg sem tók að þróast hérlendis kringum 1960. Þær taka ekki mið af því að íbúum höfuðborgarsvæðisins hefur fjölgað um 125% á síðustu sextíu árum. Þær taka mið af ríkjandi viðhorfum sjöunda áratugarins, en ekki ríkjandi viðhorfum samtímans. Sérfræðingarnir segja hins vegar áherslur sínar – á meira malbik og samgöngur fyrir suma – til þess fallnar að ná auknum ávinningi.“

„Við þurfum að fullþroskast úr sveit í borg“

Í niðurlagi greinarinnar skrifaði oddvitinn skeleggi svo að við lifum á spennandi umrótstímum sem kalli á breytingar. „Rétt eins og einkabifreið Henrys Ford mætti andstöðu munu nýir samgöngukostir alltaf vekja viðbrögð. Breytingar munu alltaf vekja viðbrögð. Það hefur verið einkennismerki sjálfstæðismanna að geta staðist slíkan brotsjó – að geta leitt á krefjandi umrótstímum og sýnt staðfestu við innleiðingu breytinga.

Fortíðin er barn síns tíma. Framtíðin er viðfangsefnið. Reykjavíkurborg þarf að byggja á framtíðarsýn sem er aðlaðandi fyrir fjölbreytta aldurshópa. Við þurfum að varðveita sérkenni okkar en gæta þess að þróast í takt við aðrar vestrænar borgir – að öðrum kosti verðum við undir í samkeppni um ungt fólk og atgervi. Við heillum ekki ungt hæfileikafólk með sextíu ára gömlum lausnum. Við þurfum að bjóða lifandi borgarumhverfi, úrval tækifæra og fjölbreytta valkosti – í frjálsu samfélagi. Við þurfum að fullþroskast úr sveit í borg.“

Aftur til fortíðar

Þessi oddviti heitir Hildur Björnsdóttir og leiðir enn Sjálfstæðisflokkinn. Hún hefur hins vegar algjörlega kúvenst í sinni pólitík og er nú orðin talsmaður þess að borgin þróist aftur í sveit. Fortíðin er skyndilega orðin viðfangsefnið og draumurinn. Meira malbik og samgöngur fyrir suma er orðið mantran.

Einn forsvarsmanna malbikshópsins sem hún andæfði með andköfum fyrir nokkrum árum er nú kominn á listann sem Hildur leiðir og í stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins er áhersla á „að endurskoða Borgarlínu frá grunni og innleiða nýtt hraðvagnakerfi á sérakreinum sem ekki þrengir að umferð“ í samræmi við áherslur þess hóps. Aðrar áherslur snúast nær allar um að eyðileggja samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins en fjölga mislægum gatnamótum og bílastæðum.

Því er ljóst að það sem fyrir fimm árum var einkennismerki Sjálfstæðismanna, að geta staðist brotsjó krafna um aukið malbik á kostnað mannvænna samfélags, og geta leitt á krefjandi umrótstímum með því að sýna staðfestu við innleiðingu breytinga, er ekki lengur til staðar. Staðfestan er engin. Þess í stað sveiflast þau eins og vindhanar í örvæntingafullri leit að atkvæðum frá harðasta hægrinu.

,

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading