Markaðnum er sama þó fjölskyldur þurfi að rífa sig upp

Dagbjört Hákonardóttir þingmaður Samfylkingar ræddi um leigumarkaðinn undir liðnum störf þingsins á þriðjudag. Hún var þá fyrr um daginn búin að sækja málþing Alþýðusambands Íslands og BSRB sem bar yfirskriftina Hvar á láglaunafólk að búa?

„Við vitum að um þriðjungur íbúa þessa lands er á leigumarkaði og þar af fjórðungur allra barna. Ég vek athygli á því. Mikill hluti þessa hóps býr við ófyrirsjáanleika en lítill hluti er í óhagnaðardrifnu umhverfi. Hinir búa við óöryggi, lítinn fyrirsjáanleika og skortir getu til þess að gera plön til framtíðar,“ sagði Dagbjört í ræðu sinni.

„Í umræðunni heyrist oft að lausnin felist í því að sem flestir eignist sitt eigið húsnæði, að séreignarstefnan verði að blífa, markaðurinn leysi verkefnið. En, forseti, markaðnum er heilt yfir slétt sama þótt einstæð móðir sé rifin upp með rótum og þurfi að flytja hverfa á milli eða landshluta á milli á hverju ári vegna þess að það er einhver annar sem ræður yfir hennar lífi; leigusalinn,“ sagði Dagbjört og færði rök fyrir því að það væri mikilvægt að uppbygging leiguhúsnæðis á viðráðanlegu verði yrði áfram kröftug.

Hún benti á að ríkisstjórnin væri að taka þessi mál föstum tökum og að það sæist meðal annars í því að á þriðjudag hefðu verið „kynntir tímamótasamningar ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu 1.200–1.400 íbúða á ríkislóðum. Hér ætla aðilar hins opinbera að vinna saman.“

Dagbjört lauk ræðu sinni með því að vitna í frásögn einstæðrar móður sem leigir hjá Bjargi, af fundi ASÍ og BSRB: „Nú þegar ég er komin í öryggi, leiga hjá Bjargi, get ég farið að hugsa um framtíðina, um stelpurnar mínar og menntunina mína.“

Þingmaðurinn sagði að þetta öryggi væri verðmætt. „Það verður ekki bara kallað fram með séreignarstefnunni. Séreignarstefnan felst í því að viðurkenna að það verða einhverjir að verða eftir. Það er ekki hugsunarháttur sem ég kenni mig við,“ sagði Dagbjört Hákonardóttir.

,

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading