Hlaðvarpið: Bensínbann til 1. maí, staðan í Árborg og auglýst eftir framtíðarsýn fyrir höfuðborgarsvæðið

Í þætti vikunnar fara strákarnir á skrifstofu þingflokksins yfir skánandi verðbólguhorfur, ársreikning Reykjavíkurborgar og yfirprjón helstu andstæðinga okkar í gagnrýni á hann. Þá ræddu þeir skattalækkun á bensíni og olíu sem tekur gildi í dag og afhverju það er mikilvægt að hafa virkt verðlagseftirlit á þessum markaði.

Arnar sagði svo frá ferð á ráðstefnu um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu þar sem skortur á jákvæðri framtíðarsýn fyrir höfuðborgarsvæðið var ríkjandi og einn þeirra sem sat í pallborði, frambjóðandi Sjálfstæðisflokks, virtist harma það að Fossvogsdalurinn hefði ekki verið malbikaður á sínum tíma.

Staðan hjá Samfylkingu og óháðum í Árborg

Í seinni hluta þáttarins er svo rætt við Sigurjón Vídalín Guðmundsson oddvita okkar fólks í Árborg um stöðu mála í sveitarfélaginu. Sigurjón er reyndur bæjarfulltrúi og hefur ýmislegt við það að athuga hvernig byrðum hefur verið velt yfir á fjölskyldur í Árborg á undanförnum árum, m.a. með sérstöku álagi á útsvar.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading