Hlaðvarp: Skref að sameiningu Seltjarnar- og Akraness og staða mála í Ölfusi

Myndi eitthvað stórfyrirtæki ráða bæjarstjórann á Seltjarnarnesi sem framkvæmdastjóra með hliðsjón af rekstri og þjónustu bæjarins síðustu ár?

Þessari spurningu og ýmsum öðrum er velt upp í spjalli við þau Auði Höllu Rögnvaldsdóttur frambjóðanda S-listans á Seltjarnarnesi og Sigurð Vopna Vatnsdal oddvita Samfylkingarinnar í Akraneskaupstað, í nýjasta þætti hlaðvarps Kratans.

Bæði eru þau ungir frambjóðendur og ný á vettvangi sveitarstjórnarmálanna, en eiga svo sannarlega bjarta framtíð fyrir sér. Arnar Þór og Þórhallur Valur tóku þau tali.

Tækifæri til að gera vel á réttum forsendum í Ölfusi

Gunnsteinn R. Ómarsson oddviti Samfylkingar og félaga í Ölfusi er svo gestur í síðari hluta þáttarins og fer yfir stöðu mála fyrir kosningar í sveitarfélaginu.

Gunnsteinn ræðir annars yfir þann reginmisskilning sem Sjálfstæðismenn þar hafa reynt að halda á lofti, að áður en þeir komust til valda hafi allt verið í óefni í Þorlákshöfn og sveitarfélaginu almennt.

Hið rétta er að búið var að vinna ýmsa mikilvæga grunnvinnu innan sveitarfélagsins í bæjarstjóratíð Gunnsteins frá 2013-2018, sem hefur reynst mikilvæg í þróun Ölfuss undanfarin ár. Tækifærin þar eru mikil en þau þarf að nýta á réttum forsendum, segja Samfylkingin og félagar í Ölfusi.

Hlustaðu hér! (eða hér að neðan)

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading