Okkar maður Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, fundaði með fulltrúm Apple á skrifstofum fyrirtækisins í London á miðvikudaginn í síðustu viku, ásamt fulltrúum úr ráðuneyti hans og frá Almannarómi – miðstöð máltækni á Íslandi.
Erindi fundarins var að óska eftir því að íslenska verði hluti af iOS stýrikerfi Apple en engin tæki frá framleiðandanum eru fáanleg með íslensku notendaviðmóti, en iPhone símarnir frá Apple eru þeir vinsælustu hérlendis.
Á fundinum sýndi íslenska sendinefndin myndband, þar sem sameiginlegir vinir Íslands og Apple, leikararnir Hera Hilmarsdóttir og Ólafur Darri Ólafsson og tónskáldið Atli Örvarsson koma við sögu, en öll hafa þau komið að gerð þáttaraða Apple TV+. Einnig kemur hljómsveitin Inspector Spacetime við sögu, en tónlist sveitarinnar hefur verið notuð í nýlegum auglýsingum fyrir iPhone síma Apple.
„Það kom upp sú hugmynd að enda fundinn á að bera Apple kveðju frá sameiginlegum vinum Apple og íslenskunnar með stuttu myndbandi. Að íslenskum sið var hóað í sameiginlega vini án fyrirvara og þeir beðnir að senda kveðju sem tókst svona glimrandi vel og vakti mikla lukku viðstaddra,“ segir Logi Einarsson um myndbandið, sem sjá má hér að neðan.
Snýst um jafnt aðgengi og raunhæfa þátttöku í nútímatækni
„Það er sérstakt áhyggjuefni að Apple tækin bjóði ekki upp á íslensku ólíkt tækjum sem nota Android stýrikerfi. Fyrir Íslendinga snýst þetta um jafnt aðgengi og raunhæfa þátttöku í nútímatækni og að tryggja að við getum notað tungumálið okkar í hinum stafræna heimi. Markmið okkar er að skilgreina hvar hagsmunir Íslands og Apple fara saman og gera grein fyrir þeirri máltæknivinnu sem nú þegar hefur átt sér stað og hægt er að byggja á,“ segir Logi að auki um þetta mál.
Ráðherrann segir jafnframt að fulltrúar Apple hafi sýnt erindi íslensku sendinefndarinnar einlægan áhuga og næstu skref séu að veita aðgengi að opnum máltæknigögnum og skilgreina í framhaldinu hvaða áskoranir eru til staðar.
Nánar má fræðast um fundinn og einnig fund Almannaróms með Google á vef stjórnarráðsins
