Ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja fram frumvarp um breytingu á lögum um laun þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna og var því útbýtt á Alþingi undir lok síðustu viku.
Með frumvarpinu er lagt til að lögfest verði varanlegt viðmið um uppfærslu launa þessa hóps og að laun hópsins hækki um 3,5% 1. júlí nk. í stað 9,7% hækkunar að óbreyttu.
Það er sumsé verið að koma í veg fyrir að laun þessara hópa hækki of mikið, en skekkja í núverandi fyrirkomulagi við ákvörðun launaþróunar þessara hópa hefur verið viðvarandi og brugðist hefur verið við henni árlega með bráðabirgðalagasetningu.
Nú á hins vegar að tryggja að launaþróun þessara hópa taki mið af breytingum á launum allra fullvinnandi starfsmanna ríkisins.
Mikilvægt fordæmi
„Með þessu lagafrumvarpi setur ríkisstjórnin mikilvægt fordæmi. Þetta fyrirkomulag sem verið hefur síðustu ár hefur ekki virkað sem skyldi. En nú breytum við lögunum þannig að launaþróun þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna ríkisins taki betur mið af almennri þróun launa í landinu. Þetta er jákvæð og tímabær breyting sem má þakka vandaðri vinnu starfshóps forsætisráðuneytisins og nánu samráði við verkalýðshreyfinguna og fulltrúa atvinnurekenda,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra um þetta mál.
