Samfylkingarlistar ná til næstum 90% kjósenda – Gerum stóra hluti saman🌹

Samfylkingin býður fram alls 19 lista í komandi sveitarstjórnarkosniningum, sumstaðar í félagi við óháða, óflokksbundna og aðra áhugasama um velgengni sinna bæjarfélaga.

Framboðum flokksins á landsvísu fjölgar um sjö frá sveitarstjórnarkosningunum árið 2022 og ná framboð Samfylkingar nú til sveitarfélaga þar sem 87% landsmanna búa, samkvæmt tölum Hagstofunnar.

S-listar í nafni Samfylkingar verða á kjörseðlum í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ, Akranesi, Reykhólahreppi, Ísafjarðarbæ, Skagaströnd, Akureyri, Norðurþingi, Fjarðabyggð, Árborg, Hveragerði og í Ölfusi.

Á Seltjarnarnesi bjóðum fer svo fram S-lista í samfloti með Viðreisn og í Fjallabyggð er boðið upp á S-lista undir merkjum Jafnarmannafélags Fjallabyggðar og óflokksbundinna.

Öflugt jafnaðarfólk sem tekið hefur þátt í starfi Samfylkingar býður svo fram í enn fleiri sveitarfélögum, þó að farið sé fram undir nafni bæjarmálafélaga án formlegra tenginga við flokkinn.

Ný framboð Samfylkingar eru átta talsins; í Garðabæ, Ölfusi, Fjarðabyggð, Ísafjarðarbæ, Fjallabyggð, Reykhólahreppi, Skagaströnd og Hveragerði. Eina sveitarfélagið þar sem S-listi fór fram árið 2022 en fer ekki fram nú er Grindavík.

Við erum klár í slaginn um land allt og viljum fá sem flesta með. Þó að við séum með bestu stefnumálin og öflugasta fólkið þá vinnur það eitt og sér ekki kosningar. Öflug þátttaka fólksins í flokknum næstu vikurnar skiptir meginmáli.

Skráðu þig sem sjálfboðaliða í þínu sveitarfélagi með því að klikka hér!

,

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading