Í könnun sem Maskína birti í síðustu viku kom fram að Kristrún Frostadóttir er sá ráðherra ríkisstjórnarinnar sem landsmenn telja að hafi staðið sig best á yfirstandandi kjörtímabili.
Alls segja 21,1 prósent aðspurðra, rúmlega fimmtungur, að hún hafi staðið sig best. Þeir ráðherrar sem koma í næstu sætum á eftir, Inga Sæland og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, voru nefndar af rúmlega tíu prósent svarenda hvor.
Til samanburðar þá lentu Guðrún Hafsteinsdóttir og Katrín Jakobsdóttir í efsta sæti á sömu könnun þegar hún var gerð í september 2024, rétt áður en ríkisstjórnin sem þær sátu í sprakk og boðað var til kosninga.
Katrín hafði reyndar hætt sem forsætisráðherra fyrr á árinu til að fara í forsetaframboð. Alls sögðu 7,3 prósent aðspurðra þá að Guðrún hefði staðið sig best en 7,1 prósent að Katrín hefði gert það. Því var sá ráðherra sem fékk bestu mælinguna við lok tilveru síðustu ríkisstjórnar með um einn þriðja af þeim jákvæðu svörum sem núverandi forsætisráðherra fékk í könnun Maskínu.
Þáverandi forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, var nefndur af 3,8 prósent svarenda en var líka sá sem langflestir, 38,6 prósent, sögðu að hefði staðið sig verst. Því sögðu 550 prósent fleiri að þeir teldu að núverandi forsætisráðherra hefði staðið sig best á yfirstandandi kjörtímabili en sögðu að fyrirrennari hennar í stólnum hefði gert slíkt áður en hann hrökklaðist frá völdum.
