Skúli Helgason og Stein Olav Romslo skrifa:
Vellíðan og árangur í námi haldast í hendur. Börnum sem líður vel gengur betur að læra og þegar börn ná árangri eykst öryggi þeirra og sjálfstraust.
Stefna Samfylkingarinnar í menntamálum snýst um jöfnuð og jöfn tækifæri allra barna til að mennta sig og láta drauma sína rætast. Vellíðan og árangur í námi haldast í hendur. Börn sem líður vel eiga auðveldara með að læra og þegar börn ná árangri eykst öryggi þeirra og sjálfstraust. Samfylkingin vill styðja betur við kennara og skóla í þeirra daglegu starfi. Við leggjum áherslu á inngildingu og fjölbreytileika, þannig að öll börn upplifi sig sem hluta af samfélaginu, óháð bakgrunni eða félagslegri stöðu.
Nýtum kennsluaðferðir sem virka
Við viljum auka áherslu á læsi og stærðfræði í grunnskólunum með skýrum markmiðum um námsárangur í góðu samstarfi við kennara og skólastjórnendur. Í Noregi þekkjast svokallaðir háskólagrunnskólar sem setja samstarf grunnskóla og háskóla í formlegan farveg. Samstarfið skuldbindur grunnskólann til að taka við kennaranemum í æfingakennslu en á móti nýtur skólinn góðs af rannsóknum sem nýtast kennurum beint í starfi. Við leggjum áherslu á gott samstarf við háskólasamfélagið um rannsóknir á námi, kennslu og þróun en síðast en ekki síst viljum við nýta markvisst gagnreyndar aðferðir í skólum borgarinnar, sem studdar eru vönduðum rannsóknum og skila betri árangri fyrir fleiri nemendur. Við eigum nýleg dæmi um slíkar aðferðir, ekki síst PALS-félagakennslu sem hefur skilað þeim árangri í Rimaskóla í Grafarvogi að öll börn í 1. bekk voru orðin læs á miðju skólaári. Annað dæmi er Bein kennsla ásamt fimiþjálfun sem sömuleiðis hefur skilað marktækt betri námsárangri en hefðbundnar aðferðir. Þá standa nú yfir rannsóknir á verkefninu Starri sem felst í að auka orðaforða nemenda. Hólabrekkuskóli í Breiðholti hefur beitt þeirri aðferð í vetur í þremur árgöngum og með góðum árangri. Tilgangur okkar er ekki að mæla fyrir um tilteknar kennsluaðferðir en marka þá stefnu að gagnreyndar kennsluaðferðir verði aðgengilegri fyrir kennara í skólum borgarinnar, sem þeir geti nýtt til að styrkja stöðu nemendahópa sinna.
Bætum geðheilbrigði barna
Við viljum hlúa sérstaklega að geðheilsu nemenda og bæta líðan með því að fjölga fagfólki, á borð við sálfræðinga og félagsráðgjafa, inni í skólum. Við viljum taka upp skimun í upphafi grunnskólagöngu til að finna snemma þau börn sem þurfa á sérstökum stuðningi að halda varðandi nám og líðan. Greining á ekki að vera forsenda stuðnings. Við tölum skýrt og viljum setja 600 milljónir á ári í bættar starfsaðstæður í grunnskólum.
Hærri framlög til skólabókakaupa
Við viljum að öll börn taki framförum til að styrkja þau í námi og leik. Þá þarf að styðja við börnin þar sem þau eru, hvort sem þau skara fram úr eða þarfnast þjálfunar. Einn liður í því er að hvetja til meiri lesturs en við í Samfylkingunni ætlum að hækka fjárveitingu til bókakaupa skólabókasafna til að gefa öllum aðgengi að nýjum íslenskum barnabókmenntum. Samfylkingin hafði frumkvæði að samstarfi við bókaútgefendur fyrir nokkrum árum sem endurreist var á síðasta ári en þar var viðbótarfjármagn sett til skólabókasafna til kaupa á nýjum íslenskum barna- og unglingabókum á góðum kjörum.
Aukin íslenskukennsla barna með annað móðurmál
Eitt mikilvægasta verkefni okkar verður að auka til muna íslenskukennslu barna með annað móðurmál en íslensku til þess að auka inngildingu þeirra og gæði menntunar. Það er nauðsynleg forsenda jafnaðar í menntakerfinu að allir nemendur hafi góð tök á tungumálinu, að öðrum kosti erum við að gengisfella menntun þeirra sem ekki kunna góð skil á íslenskri tungu.
Við hvetjum öll til að kynna sér stefnu Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningar, ekki síst í menntamálum þar sem við leggjum grunn að farsælli framtíð barna í borginni.
Við hvetjum öll til að kynna sér stefnu Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningar á xs.is/reykjavik, ekki síst í menntamálum þar sem við leggjum grunn að farsælli framtíð barna í borginni.
Höfundar eru frambjóðendur Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 23. apríl 2026.
