Vill ekki að fæðingarorlofskerfið refsi fólki fyrir að eignast börn snemma eða með skömmu millibili

Ragna Sigurðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar hefur lagt fram þingsályktunartillögu sem felur í sér að ráðherra endurskoði tímabil viðmiðunargreiðslna vegna fæðingar- og foreldraorlofs, til að tryggja örugga framfærslu foreldra sem eignast börn snemma á starfsævinni eða eignast fleiri en eitt barn með stuttu millibili.

Ragna gerði þingmálið, sem átta aðrir þingmenn Samfylkingar eru meðflutningsmenn á, að umtalsefni í ræðu undir liðnum störf þingsins í dag.

Þar sagði Ragna, sem er nýlega snúin aftur á þing eftir fæðingarorlof, að ríkisstjórnin hefði þegar gripið til aðgerða til að breyta fæðingarorlofskerfinu til að styrkja afkomuöryggi fjölskyldna, eins og kveðið er á um í stjórnarsáttmála.

„Það sést á framlagðri fjármálaáætlun að þrátt fyrir að það þurfi að forgangsraða stendur ríkisstjórnin vörð um þennan hóp. Samhliða þeim breytingum sem ríkisstjórnin hefur þegar ráðist í tel ég nauðsynlegt að við höldum áfram að bæta kerfið,“ sagði Ragna.

Hún bætti svo við að lykilatriði í þeim efnum væri að endurskoða viðmiðunartímabil fæðingarorlofsgreiðslna, en hér á landi nær viðmiðunartímabilið lengra aftur en annars staðar á Norðurlöndunum.

Þetta getur meðal annars haft þau áhrif, hjá fólki sem eignast börn með stuttu millibili, að greiðslur úr fæðingarorlofssjóði í fyrra orlofi falli inn á viðmiðunartímabilið fyrir það seinna. Einnig er þekkt að fólk sem er nýlega komið inn á vinnumarkað verði fyrir verulegum búsifjum við barneignir, þar sem fæðingarorlofsgreiðslur taka mið af þeim tíma er fólk var í námi.

Ragna sagði að ef fyrirkomulagið yrði „fært nær því sem er á hinum Norðurlöndunum hefði það afgerandi áhrif á þessa hópa, en einnig sérstaklega á feður sem oftar en ekki taka megnið af fæðingarorlofi sínu á eftir móður og eru því oft með fæðingarorlofsgreiðslur sem endurspegla illa tekjur þeirra í aðdraganda orlofstöku.“

Sjá má þingsályktunartillöguna í heild sinni hér

,

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading