Dagur B. Eggertsson skrifar:
Rökin hrannast upp fyrir því að skynsamlegt væri að seinka upphafi skóladags í framhaldsskólum – og reyndar háskólum. Rannsóknir hafa sýnt að 50% nemenda í 10. bekk grunnskóla og 90% nemenda í framhaldsskóla fá ekki nægan nætursvefn.
Af hverju skiptir það máli? Ef svefn væri lyf þá væri innihaldslýsingin meðal annars þessi: svefn bætir athygli, einbeitingu, námsárangur og úthald, dregur úr kvíða, líkum á þunglyndi og bætir almenna líðan og hamingju. Nægur svefn bætir samskipti og hjónabönd, og já, eykur kynorku og bætir kynlíf. Og reyndar mætti þannig lengi telja af rannsóknarstuddum niðurstöðum um mikilvægi og kosti góðs og nægjanlegs svefns.
En það eru fleiri rök fyrir því að seinka upphafi skóladags. Ný úttekt á vegum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu sýnir að þegar skólar hefjast að hausti tekur 30 mínútum lengur að komast á bíl frá Hafnarfirði í miðborg Reykjavíkur. Ástæðan er sú að nánast allir grunn-, framhalds- og háskólar á höfuðborgarsvæðinu byrja á bilinu klukkan 8.10-8.30 (nema í Reykjavík).
Ótrúlega hátt hlutfall nemenda og starfsmanna skólanna fer ferða sinna á bíl, ef borið er saman við nágrannalönd. Leiðin til að bregðast við því er að gera almenningssamgöngur miklu meira aðlaðandi, með forgangsreinum og aukinni tíðni, líkt og til stendur með borgarlínu. En það er engin ástæða til að bíða með að seinka upphafi skóladags til að stuðla að betri svefni og vinna gegn þessum álags- og tafatoppum í umferðinni.
Reykjavík hefur sýnt að það er hægt. Fyrir tveimur árum var upphafi skóladags seinkað á unglingastigi í öllum grunnskólum borgarinnar, m.a. að minni tillögu, eftir tilraunaverkefni, rannsóknir og víðtækt samráð með þátttöku unglinga, kennara og skólastjórnenda. Verkefnið var vel undirbúið og unnið í samstarfi við vísindafólk í svefnrannsóknum. Það hefur gengið gríðarlega vel og mælst vel fyrir. Ég þori að fullyrða að meginþorri nemenda og starfsfólks vilji ekki fara til baka. Rökin um betri svefn ættu að nægja ein og sér.
En til að bæta umferðina er líka mikilvægt að fleiri noti strætó, hjóli eða gangi. Til að auka almenningssamgöngur hjá ungu fólki væri ráð að strætó-passi fylgdi með skráningargjöldum í framhalds- og háskóla. Hjólainnviði við skóla þarf áfram að bæta. Sömu aðferðum ætti að beita fyrir stóra vinnustaði. Skattfrelsismörk vegna samgöngusamninga vinnustaða hafa ekki breyst árum saman. Þau mætti hækka. Vinnustaðir og opinberar stofnanir verja oft miklu hærri fjárhæðum í niðurgreidd bílastæði en til starfsfólks sem tekur strætó eða hjólar. Það er sanngirnismál að þar verði betra jafnvægi.
Seinkun skóladags og virkir ferðamátar skipta verulegu máli fyrir heilsuna í gegnum hreyfingu og svefn. Við vitum þetta. Gerum þetta.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 26. mars.
