Framboðslisti Samfylkingarinnar á Akranesi var samþykktur einróma á fjölmennum félagsfundi á þriðjudagskvöld. Hann er skipaður fólki á öllum aldri, með fjölbreytta þekkingu og reynslu af öllum hliðum samfélagsins á Akranesi. Sigurður Vopni Vatnsdal ráðgjafi hjá Sjóvá er nýr oddviti framboðsins á Skaganum, en hann tekur við keflinu af Valgarði Lyngdal Jónssyni bæjarfulltrúa og kennara.
Samfylkingin hlaut 28,29% atkvæða í Akraneskaupstað árið 2022 og hélt sínum þremur bæjarfulltrúum. Á kjörtímabilinu hefur framboðið myndað meirihluta í bæjarstjórn ásamt Sjálfstæðisflokki.
Frambjóðendur Samfylkingarinnar í bænum starfa við hin ýmsu störf, bæði á einkamarkaði og hjá hinu opinbera, og hafa þá sameiginlegu sýn að til að þjónusta bæjarfélagsins við íbúa sína geti verið framúrskarandi hér eftir sem hingað til, þá þurfi hún að standa á stoðum öflugs og fjölbreytts atvinnulífs.
Samfylkingin leggur áherslu á fyrsta flokks þjónustu við íbúa, metnað í uppbyggingu þeirra mannvirkja sem hýsa þjónustuna og styrka fjármálastjórn bæjarins, byggða á skýrri stefnumótun til framtíðar.
Framboðslistinn á Akranesi í heild sinni:
1. Sigurður Vopni Vatnsdal, ráðgjafi hjá Sjóvá á Akranesi
2. Jónína Margrét Sigmundsdóttir, bæjarfulltrúi og starfsmaður í stuðningi við fólk með áfengis- og fíknivanda
3. Kristinn Hallur Sveinsson, bæjarfulltrúi og sérfræðingur hjá Loftmyndum ehf.
4. Anna Sólveig Smáradóttir, sjúkraþjálfari og varabæjarfulltrúi
5. Jón Hjörvar Valgarðsson, umsjónarmaður Arnardals og nemi við HÍ
6. Katrín Valdís Hjartardóttir, svæðisstjóri æskulýðsmála í Vesturlandsprófastsdæmi
7. Björn Guðmundsson, húsasmiður og varabæjarfulltrúi
8. Þóranna Hildur Kjartansdóttir, sjúkraliði
9. Gunnþórunn Valsdóttir, leikskólakennari
10. Örn Arnarson, grunnskólakennari
11. Margrét Bjarnadóttir, tannfræðingur
12. Ásbjörn Þór Ásbjörnsson, viðskipta- og markaðsfræðingur
13. Agla Harðardóttir, sérfræðingur í gagnaþróun hjá Kviku Banka hf.
14. Elvar Sigurjónsson, starfsmaður Ölgerðarinnar
15. Gunnhildur Björnsdóttir, grunnskólakennari og leiðsagnarkennari
16. Bjarni Vésteinsson, byggingafræðingur
17. Ásta Egilsdóttir, kennari
18. Valgarður Lyngdal Jónsson, bæjarfulltrúi og kennari

Sigurður Vopni og Valgarður Lyngdal, sem verið hefur oddviti Samfylkingar á Akranesi.
