„Ég er Evrópusinni sjálf. En ég er jafnaðarmaður fyrst og fremst,“ sagði Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar, er hún ræddi um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið, í ræðu á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar síðasta laugardag.
Þar sagðist formaðurinn sýna fólki fullan skilning, hefði það efasemdir um að hagsmunum Íslands væri best borgið innan Evrópusambandsins.
„Ég hef sagt að fólk geti augljóslega verið sósíaldemókratar og haft hvaða skoðun sem er á þessu og verið í Samfylkingunni, hvað sem því líður. En ég mun segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst næstkomandi, sem gæti orðið fyrri þjóðaratkvæðagreiðslan af tveimur,“ sagði Kristrún og rökstuddi svo þá afstöðu sína:
„Ég held að það geti verið gluggi núna fyrir Ísland. Til að nýta tækifærin sem geta falist í þeirri stöðu sem nú er uppi í Evrópu og í alþjóðamálunum. Og ég tel að við ættum að minnsta kosti að halda því opnu að kanna nánar kostina sem kunna að felast í aðild að Evrópusambandinu,“ sagði hún.
Að því búnu tók hún skýrt fram að hún myndi aðeins segja já við aðild ef hún væri algerlega sannfærð um að tekist hefði að landa góðum samningi fyrir Ísland, sem tryggði „hagsmuni okkar og fullt forræði yfir auðlindum þjóðarinnar.“
Kraftmikið samtal um Evrópusambandið í sumar
Kristrún sagðist ekki hafa viljað „þjófstarta umræðunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna“ og að hún teldi fara best á því að við einbeittum okkur að sveitarstjórnarkosningunum 16. maí.
„En auðvitað fer svo umræðan smám saman í gang og áhuginn eykst eftir því sem nær dregur. Það er eðlilegt. Og við munum hafa nægan tíma í sumar til að vega og meta kostina og taka kraftmikið samtal við þjóðina í ágúst, eftir að fólk kemur til baka úr sumarfríinu,“ sagði Kristrún.
Við flokksmenn sagði hún að hún væri meðvituð um að það væri „skiptar skoðanir innan flokksins um það að hversu miklu leyti Samfylkingin á að keyra þessa kosningabaráttu og hvetja fólk til að greiða atkvæði með áframhaldandi viðræðum“ – og að hún teldi sjálf að það væri betra að „hefja mál af þessari stærðargráðu upp yfir flokkspólitískar átakalínur.“
Þess vegna væri ágætt að þjóðaratkvæðagreiðslan færi fram í lok sumars, þegar þingið er ekki að störfum.
„En stjórn flokksins mun beita sér fyrir opinni umræðu og samtali um land allt þegar nær dregur. Og ég veit að fjöldi flokksmanna mun láta sig málið varða og beita sér í umræðunni. Það er bara hið besta mál og ég er fullviss um að allt fer þetta vel þegar upp er staðið.
Íslandi mun áfram vegna vel — hvort sem við kjósum að kanna nánar kosti aðildar eða ekki. En það er spennandi tækifæri fyrir þjóðina að fá loksins að kjósa um þetta,“ sagði Kristrún.
